Þakklæti
Ég hef ekki bloggað lengi. Ég hef leitt hugann að blogginu af og til síðan síðasta bloggfærsla varð til- hef meira að segja opnað bloggið nokkrum sinnum en ekki getað skrifað staf í einhverju andleysi og almennri þoku.
En hér er ég mætt- eða í það minnsta einhvers konar holdgervingur af mér.
Það er mið nótt og ég var að enda við að leggja yngsta afkvæmið steinsofandi í vögguna sína. Ég virði fyrir mér litla drenginn minn sem er rétt tæplega þriggja vikna og hugleiði hvað ég er í raun heppin með líkamann minn. Hvað ég má vera þakklát fyrir margt og hvað ég á það í raun lítið skilið eftir allt sem á undan er gengið.
Þrátt fyrir veikindin er ég búin að fæða þrjú heilbrigð börn. Fæddi tvö yngstu án deyfinga og rétt náði á spítalann þar sem þau fæddust svo hratt og átakalaust. Hvað gerði ég til að eiga svona góðar fæðingar skilið ? Og hvernig stendur á því að líkaminn minn virkar enn svona vel þrátt fyrir illa meðferð mína á honum ?
Ég er heppin kona, það leikur enginn vafi á því.
Á síðustu meðgöngu þurfti ég að hafa mig alla við til að halda mér á beinu brautinni. Það er ekki auðvelt að vera nýkominn úr átröskunarmeðferð og horfa á magann stækka og líkamann breytast jafnvel þó ég hafi vitað af litla einstaklingnum sem bjó þarna inni. Ég borðaði fyrir hann, gerði allt fyrir hann og hundsaði ósækileg skilaboð eftir fremsta megni.
Nú er hann fæddur og ég held áfram að borða fyrir hann, sinna sjálfri mér fyrir hann. Hann fæddist risastór og hefur þyngst svakalega vel frá fæðingu svo eitthvað er ég að gera rétt. Ég ætla að horfa á börnin mín þegar ég er við það að misstíga mig og hafa í huga hvað það er mikið í húfi. Ég vil halda mjólkinni fyrir litla snúðinn og vera góð fyrirmynd fyrir eldri börnin tvö.
Svo á líkaminn minn líka skilið að fá smá "breik" og vera metinn að verðleikum. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þennan líkama í fyrsta skipti í langan tíma. Það virkar allt eins og það á að virka og hann er bara ágætur eins og hann er þó ég sé langt frá því að líta út eins og einhver photoshop gella úr tískublaði. Þetta er bara ég, svona var ég sköpuð.
Ég er enn á mjög viðkvæmu stigi eftir fæðinguna; þetta er tímabilið sem hefur yfirleitt gert mig veikari. Ég er samt reynslunni ríkari í þetta sinn - ég þekki merkin og hef viljann til að setja undir mig höfuðið og "power through" ef á brattann sækir.
Ég er búin að vera vanþakklát. Nú er kominn tími til að vera þakklát.


12 Comments:
Elsku Eygló mín, þú hlýtur að hafa sent mér hugboð því að ég hef ekki kíkt á bloggið þitt lengi og allt í einu datt mér bara í hug að kíkja og sjá hvort þú hefðir skrifað eitthvað.
Þú ert svo sterkog dugleg, ég hef nýlega verið að hugsa mikið um það hvað það er í rauninni stutt síðan að ég var ofboðslega veik, mér finnst vera óralangt síðan en bara að hugsa til baka og skoða myndir sem voru teknar í kringum jólin í fyrra og þá sé ég hvað ég er komin langt.
Það er erfitt að misstíga sig ekki en við getum það. Haltu áfram að vera sterk ekki bara fyrir fjölskylduna heldur líka sérstaklega fyrir þig því þú átt það svo innilega skilið.
Ég vona að þið fjölskyldan hafið það sem allra best um hátíðirnar.
Kveðja
Helga Katrín
Skítt með photoshopuðu gellurnar, þær eru hvort eð er ekkert mikið sætari en allar hinar ef þú skoðar myndirnar fyrir myndvinnsluna.
Fyrir utan það þarft þú ekki á neinu photoshoppi að halda, þú ert falleg nákvæmlega eins og þú ert, á líkama og sál. Mundu það :)
Knús, Oddný
Æ takk, báðar tvær, fyrir ótrúlega falleg komment :* þið eruð nú meiri perlurnar! Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég fæ komment hérna inni eftir langa fjarveru - finnst frábært að þið fylgist ennþá með blogginu mínu þó ég sé stundum alveg brjálæðislega löt að blogga :)
Knúsur og kremjur!!
Elsku Eygló, kæra frænka. Ég er svo innilega sammála þeim sem skrifa hérna á undan. Þú ert alveg frábær eins og þú ert :o) Ég kíki alltaf á bloggið þitt öðru hvoru, sem er mér og öðrum sem lesa það mjög svo lærdómsríkt. Haltu áfram á beinu brautinni, og megi árið 2011 verða okkur öllu gæfuríkt.
Bestu kveðjur
Ranný
Gaman að sjá nýtt blogg :) Kíki alltaf annað slagið við hjá þér.
Elsku besta flotta klára stelpa - þú ert æðisleg eins og þú ert .. mundu það. Einstök og frábær. Tek heilshugar undir með Oddnýju um photoshopið! ;)
Vonandi gengur vel og þið hafið það sem allra best. Knúsur og kram
- Ásta
Takk, elsku Ranný frænka og Ásta mín :-)
elsku Eygló ég elska þig nákvæmlega eins og þú ert að innan sem og utan, myndi ekki vilja neina aðra útgáfu af þér. þú ert hvunndagshetja, og þú hefur verið verðlaunuð þrátt fyrir að vera ekki á forsíðum dagblaðana.
þú ert hetjan mín og besta systir og vinkona mín.
love you
Lísa
Tek undir með öllum hinum, þú ert langflottust alveg eins og þú ert. Algjört yndi í alla staði.
Knús og farðu vel með þig.
Inga.
Hæ yndi! Gaman að lesa nýtt blogg hjá þér, þú ert hetja!:) Mundu að photoshop gellurnar eru allar fake og bara búnar til svo að við hinar getum rifið okkur niður fyrir ófullkomnun okkar. Þú ert ekki fake, heldur fullkomlega eðlileg og glæsileg kona! Haltu áfram að velja rétt á skjön við púkana. Áfram bati. Áfram, áfram, áfram, and never look back:)
Bjartsýniskveðjur, AnnaBegga:*
Takk elskurnar mínar fyrir yndisleg komment! Mér þykir rosa vænt um þau- og líka fólkið sem skrifaði þau :* :)
Elsku Eygló mín til hamingju með drengin ykkar:O)
mikið ofboðslega ertu sterk og dugleg það er sko auðvelt að misstíga sig því miður trúðu mér og vááááá hvað þú ert miklu fallegri en þessar photoshopuðu gellur minntu þig á það á hverjum degi :O)
og að eiga 3 heilbryggð börn eru sko forréttindi vona að þú og þið fjölskyldan þín hafi það rosa gott c",)
kveðja Linda
xx...
Post a Comment
<< Home