Army of me

Monday, April 12, 2010

Hurðarskellirnir og tómleikinn

Ég hef ekki staðið mig við bloggið undanfarið.

Að hluta til má rekja það til þess að ég á orðið auðveldara með að tala og hef því haft minni þörf fyrir að nota skriflegu leiðina. Hins vegar hefur þessi bloggleti líka stafað af depurð, doða og tómleikatilfinningu.

Ég hef verið að bíða eftir því að fá andann yfir mig, ég hef í margar vikur beðið eftir því að finna eitthvað gífurlega jákvætt og uppbyggjandi til að skrifa því ég hef ekki viljað skrifa eitthvað væl á netið sem gefur engum von og hlýju í hjartað ;)

Þessi bloggbjartsýni hefur þó látið á sér standa svo ég verð að moða úr því sem ég hef. Og þetta er það sem ég hef fram að færa; doði, depurð og tómleiki.

Þetta hljómar vafalaust hræðilega. Ótrúlegt en satt- þá er þetta samt jákvætt í bataferlinu. Það er algengt og eðlilegt að upplifa þessar tilfinningar eftir því sem átröskunin verður minni og batinn tekur yfir. Ég er að kveðja átröskunina, sem er búin að vera náinn "vinur" minn og hún skilur eftir sig tómarúm sem ég kann ekki alveg að meðhöndla. Hvað kemur í staðinn fyrir allt sem átröskunin yfirtók á sínum tíma ? Ég segi það stundum að átröskunin læðist á tánum þegar hún kemur en skelli hurðum þegar hún fer.

Núna þarf ég að halda hurðarskellina út. Stinga fingrunum í eyrun og jafnvel söngla og láta sem ég heyri ekki hrópin og köllin og frekjuganginn í Veikgló sem reynir, af veikum mætti, að fá að vera með örlítið lengur. Það er ekki í boði, ég er búin að fá svo mikið meira en nóg.

Nú þarf ég að einbeita mér að því að fylla upp í tómarúmið á nýjan leik. Dusta rykið af gömlum, gleymdum áhugamálum, grafa upp vini mína, leita uppi styrkleika mína og sökkva mér í jákvæða og heilbrigða hegðun. Gefa sjálfri mér séns, sættast við mig eins og ég er. Það er svo sannarlega kominn tími til.

12 Comments:

At April 13, 2010 4:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló - gott að heyra "í" þér. Gott að heyra að þú ert komin áleiðis í batanum:) Það er alltaf erfitt að kveðja gamla munstrið sitt og hefja nýtt, maður er líka stundum svo fljót að detta í gamla farið sem maður þekkir svo vel.
... Þú mannst hvar ég er ef þú vilt komast út eða spjalla eða bara hvað sem er ;)

Gangi þér vel með restina :) Þú ert frábær og einstök.

- Ásta

 
At April 13, 2010 6:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Gangi þér vel Eygló mín
kv.Heiða Björg

 
At April 13, 2010 11:28 AM, Blogger Eygló said...

Takk krútturnar mínar, báðar tvær :*

 
At April 13, 2010 4:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Knúsar á þig, kæra Eygló! Bestu kveðjur, Jóhanna.

 
At April 14, 2010 1:43 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Jóhanna mín :)

 
At April 14, 2010 3:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Öll skref í bataferlinu eru mikilvæg. Þú hefur sýnt það hingað til að þú ert miklu sterkari en frekjudósin hún Veikgló. Ég veit að þú kemst í gegnum hurðaskellina hennar líka :)

Mundu svo að bloggið á ekki að vera til að ausa sólskini, regnbogum og blómum yfir okkur hin. Það á að hjálpa þér manstu? Þú hefur fullan rétt til að blogga líka þegar þú hefur eitthvað "minna jákvætt" að segja.

Stundum finnst þér það t.d. ekki vera jákvætt, eins og þetta blogg, en það ER jákvætt. Þú ert einu skrefi nær batanum! :)

Knús, Oddný

 
At April 14, 2010 8:38 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk, elsku Oddný mín :*

 
At April 14, 2010 4:26 PM, Anonymous Anonymous said...

Elsku dúllan mín gaman að fylgast með hvað þér miðar áfram.
Efast ekki umm að þú hættir að heyra hurðaskellina fljótlega.þú stígur inn í sumarið á fullri siglingu batans á þínum hvíta hesti.
fyllgist grannt með þér og óska þér alls góðs dúllan mín
gamla í sveitinn

 
At April 15, 2010 1:55 AM, Anonymous Edda said...

Þú bloggar þegar þú vilt um það sem þú vilt. Þetta er þitt blogg og við hin erum bara svo heppin að fá að lesa það.

 
At April 15, 2010 7:32 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Edda og Erla :)

 
At April 29, 2010 1:11 PM, Blogger pepsimax said...

Sé svo mikið eftir því að hafa ekki stokkið á þig og knúsað þig um daginn þegar þið komuð í sjoppuna til mín. Mig langaði það svo. Þú ert algjörlega hetjan mín! Haltu áfram að standa þig svona vel. Knús, kremj og svo framvegis.

 
At April 29, 2010 3:45 PM, Blogger Eygló said...

Æ takk, elsku Tinna! Mikið var þetta fallegt og krúttað komment :) þú ert súperkrútt!

 

Post a Comment

<< Home