Að staldra við og njóta

Því laust niður í huga minn á dögunum að ég hafi ef til vill ekki verið að njóta lífsins til hins ítrasta. Þegar þessi hugljómun mín átti sér stað upplifði ég svo fallegt og fullkomið andartak og eftir það hef ég lagt mig fram við það að staldra örlítið við til þess að njóta - æða ekki áfram án þess að líta að minnsta kosti örlítið til hægri eða vinstri.
Ég skal reyna að útskýra þessa upplifun nánar og taka áhættuna á því að þið stimplið mig sem væminn og uppskrúfaðan bullara ;)
Þennan morgun hafði ég mælt mér mót við Tinnsluna mína á yndislegasta kaffihúsi bæjarins þar sem tíminn stendur í stað og kaffið bragðast betur en alls staðar annars staðar í Reykjavík. Það var hrollkalt en blankalogn og í skímunni frá ljósastaurunum glansaði á blautt malbikið eftir áfall næturinnar. Eins og miðbænum sæmir, hímdu letilegir og vel nærðir kettir í flestum skúmaskotum og ein og ein manneskja sást á gangi, ýmist með blaðskellandi leikskólabarn í eftirdragi eða ein síns liðs.
Lyktin af ristuðu brauði og nýlöguðu kaffi fór stigvaxandi eftir því sem ég nálgaðist kaffihúsið rólegum skrefum og í því er ég sest á ískaldan bekk sem staðsettur er þar rétt fyrir utan keyrir bíll fram hjá. Það er svosem ekki ýkja merkilegt þar sem bílaumferðin var líklega í hámarki, nema fyrir þær sakir að útvarpið var ansi hátt stillt svo ég heyrði vel hvað viðkomandi var að hlusta á. Í eyrum mínum hljómaði skyndilega "what a wonderful world" og þá ákvað ég að þetta hlyti að vera hið fullkomna andartak.
Rétt skömmu seinna birtist vinkona mín með fallega brosið sitt og gefur mér morgunknús og býr sig undir kaffidrykkju og spjall um allt og ekkert. Fullkomin leið til að hefja daginn, mæli með þessu :)
Ég held það sé okkur öllum hollt að æfa okkur í því að staldra við. Njóta fegurðarinnar í hversdagnum, lykta af blómunum við gangstíginn af og til :-). Ég hef alveg gleymt því í öllum mínum reglum en nú skal verða breyting þar á.
Stöldrum við og njótum ! Það er svo sannarlega þess virði ! :)
Knúsur
Eygló


16 Comments:
Heyr heyr!
Ég held við gleymum allt of oft að horfa á litlu hlutina, sem eru samt svo stórir að þeir gefa lífinu gildi.
Knús Eygló mín. Þú ert yndisleg.
Heiða bekkjarsys
lovjú!
Takk Heiða og sömuleiðis, mér finnst þú líka yndisleg ! :)
Og nafnleysa - elska þig örugglega líka hehe :)
yndislegt blogg hjá yndislegri stelpu :)
- ég er þessi ókunna .. hilsen Ásta
Virkilega mikið til í þessu! Uppbyggileg og falleg færsla hjá þér. Já og það er allt í lagi að vera "væmin" af og til, það er öllum hollt :)
Kveðja, Oddný
Takk, sætu stelpurnar mínar :)
Þetta var yndisleg lesning fann að það færi að stittast í eitthverja svona upplifun, en mér fynnst hún ekkert væmin þetta er hjá okkur öllum við bara tökum þessu sem sjálfsögðum hlut sem það er ekki, það er svo margt sjálfsagt í hversdagsleikanum sem er yndislegt eins og þú ert Gló Gló mín
Gamla í sveitinni
Takk, elsku Erla!
Hugljúf færsla og svo sannarlega er mikið til í þessu hjá þér...í öngþveiti dagsins veitti manni sko ekki af að staldra aðeins við og njóta! Eigðu góðan dag elsku Eygló :)
Kveðja, Jóhanna.
Takk, elsku Jóhanna ! :)
Ég er örugglega bara mjög væmin sjálf því mér fannst færslan þín ekkert væminn bara falleg :) Þetta er svo rétt hjá þér við mættum miklu oftar staldra aðeins við og njóta. Hefur þér aldrei dottið í hug að skrifa smásögur ??? Þú kemst svo einstaklega vel að orði að þú yrðir örugglega metsölu höfundur á "einu augabragði"
Eigðu góðan dag gló gló mín, Heiða Björg
Takk elsku Heiða Björg :*
Smásögur segirðu.. jú ég hef stundum verið að rembast við það en þær verða yfirleitt svo lítilfjörlegar að ég gefst upp híhí ! ;)
Ég ætla að leyfa mér að stórefast um að það sé rétt Eygló. Það er ekkert lítilfjörlegt við þig! :)
Knús, Oddný
Awwww vá takk, Oddný ! *roðn* ;)
verð að taka undir þetta með smásögurnar, það sem þú skrifar hér inni er svo vel skrifað að ég efast um að smásögurnar þínar séu litilfjörlegar. Knús og takk fyrir að vera til! P.s. er að fara að hringja í þig, í næstu "frímínútum";o)
Post a Comment
<< Home