
Í fyrstu færslunni sem ég braut ísinn og opinberaði vankanta mína lofaði ég því að það yrði ekki veikindafýla af blogginu eftirleiðis. Ég sé núna að það var svolítið skökk fullyrðing hjá mér. Ég var strax farin að biðjast afsökunar fyrirfram og farin að óttast það að vera leiðinleg og óviðeigandi. Ég sá það ekki þá en núna, nokkrum dögum síðar, sé ég skekkjuna.
Rót minna vandamála hefur nefnilega svo oft verið sú að ég vil gera öllum til geðs, helst vera vinur allra (held ég eigi það sameiginlegt með flestum með heilbrigða siðferðiskennd) og vera öllum við hæfi. Ég hef óttast það að troða einhverjum um tær, hef verið hrædd um að vera fyrir og taka of mikið pláss. Svo hefur að sjálfsögðu verið heilmikill ótti tengdur því að einhverjum finnist ég leiðinleg eða óþolandi og ég held að oft hafi ég ætlað einhverjum tilfinningar sem hann hefur ef til vill ekki haft. Slíkur er kraftur hugans- held það væri un betra að beita þessum krafti á réttan hátt og láta hann vinna með mér en ekki á móti mér!
Eftirleiðis ætla ég að æfa mig í því að blogga um það sem skiptir mig máli, um það sem er mér hugleikið og reyna að hætta að hugsa um það að ég sé ekki nógu hitt eða þetta. Þessa dagana er meðferðin og bataferlið mér ofarlega í huga þar sem það er jú það sem ég er að takast á við alla daga og ég held það hjálpi mér að tala um hlutina. Átröskunin þrífst nefnilega svo vel í felum- hún þolir ekki sviðsljósið og vill ekki láta kjafta frá. Þess vegna ætla ég að kjafta frá.


6 Comments:
Hæ,hæ, skrifar svo engin komment þegar þú ert á léttu nótunum !
En alltaf jafn gaman að lesa það sem þú skrifar, áfram Eygló,,,
Ég bíð eftir næsta bloggi,
Þín mamma
Æðislegt að sjá hvað þú ert á góðri leið til Panama :) Er massívt stolt af þér sæta skvís!
Kv. Ásta
Takk, báðar tvær :)Alltaf svo gaman að fá komment :)
Eygló mín mikið er ég stollt af þér held að þú sért komin á breiðu brautina með þessari ákvöruðn þinniþú ert bara æðisleg fylgist grannt með þér og sendi þér oft allar mínar bestu hugsanir og bið þess að þér batni sem ég veit að kemur.Risa Risa knús frá gömlu í sveitinni
Æ takk Erla mín :) þetta kemur allt með kalda vatninu !
Iss, þú átt að skrifa eins og þig langar til, um það sem þér liggur á hjarta. Ef það er of "eitthvað" fyrir einhvern þá bara sleppir sá eða sú hin sama að lesa þann daginn. Svo einfalt er það.
Knús, Oddný
Post a Comment
<< Home