Army of me

Tuesday, November 24, 2009

Vaxtarverkir

Einn góður starfsmaður Hvítabandsins líkti upplifun minni af ferlinu við það að vaxa og fá þar af leiðandi óhjákvæmilega vaxtarverki. Hún hitti svo sannarlega naglann á höfuðið.

Þessa dagana er ég að upplifa þessa gífurlegu vaxtarverki af fullum krafti. Ég finn fyrir þeim allsstaðar, andlega sem líkamlega - eða þannig er tilfinningin.

Ég er um þessar mundir að vaxa. Ég er að vaxa sem persóna, og ég er að vaxa líkamlega til að ná því að verða heilbrigð. Þetta er erfitt og stundum hvarflar það að mér að hætta við og fara í sama gamla farið sem ég þekki og þarf ekki að hafa eins mikið fyrir. Ég veit það samt að þegar vaxtarverkjunum lýkur mun eitthvað annað og betra taka við.

Núna þarf ég að tolla í núinu. Þola vaxtarverkina og hugga mig við það að hver verkur færir mig nær markmiðum mínum. Rétt eins og hríðir þar sem hver hríð færir okkur nær því að fá yndislega barnið okkar í fangið.

Ég held að í þessu tilviki muni ég fá sjálfa mig í fangið og ég ætla að leyfa mér að hlakka pínulítið til að geta faðmað mig aftur og hughreyst mig. Þetta er verkefni sem ég þarf að takast á við og ég hef einsett mér að ná árangri.

Því ég er, þrátt fyrir allt, ekki þekkt fyrir það að gefast upp.

5 Comments:

At November 24, 2009 12:04 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég sendi þér eitt faðmlag Eygló mín :)
kv. Ester.

 
At November 24, 2009 2:03 PM, Anonymous Anonymous said...

skemmtileg og góð samlíking :)

Knús og kram skvísa

- ´ásta

 
At November 24, 2009 4:06 PM, Blogger Eygló said...

Takk sætur og stórt knús á móti ! :)

Já þetta er góð og skýr samlíking ;)

 
At November 25, 2009 8:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert dugleg!

Knús.

Heiða bekkjarsys

 
At November 25, 2009 9:25 AM, Blogger Eygló said...

Takk Heiða sæta :*

 

Post a Comment

<< Home