Takk og aftur takk !
Kærar þakkir fyrir allar fallegu kveðjurnar og kommentin hér á síðunni ! Ég er eiginlega bara orðlaus, ég bjóst ekki við neinum viðbrögðum- hvað þá svona jákvæðum. Þetta sýnir mér bara hvað það er mikið af góðu fólki í kring um mig. Nú þarf ég að fara að rækta sambandið við ykkur öll aftur, það er nokkuð ljóst!
Nú er klukkan að verða hálf tvö að nóttu svo ég verð stuttorð í þetta sinn - bæti þá bara upp fyrir ritræpuna í síðustu færslu ! Ég var að sauma áðan og kem mér svo ekki í bælið. Ég hef saumað eins og vindurinn (veit reyndar ekki hvort hann kann að sauma) undanfarið. Ég er að sauma barnahúfur úr fleece efni og það hefur hjálpað mér mikið í meðferðinni. Það er gott að hafa eitthvað fyrir stafni og geta einbeitt sér að einhverju þegar hugurinn vill leita í neikvæðan farveg. Svo er nú planið að reyna að sauma eitthvað annað en húfur með tíð og tíma, en í bili nægja húfurnar mér.
Annars er allt gott að frétta. Meðferðin gengur vel og ég finn batann aukast með hverjum deginum þó stundum sé þetta erfitt og stígurinn ansi grýttur. Börnin dafna vel, sú stutta er að pikka upp flestar pestir sem hún finnur í kring um sig en það tilheyrir aldrinum. Ísak gengur vel í skólanum og er stöðugt að verða sleipari í lestrinum og Anton er á kafi í vinnu - sem verður að teljast afar jákvætt eins og staðan er í dag.
Það er semsagt allt á uppleið hjá okkur öllum. Ég skrifa ítarlegra og innihaldsríkara blogg innan skamms. Nú ætla ég að skríða undir sæng og reyna að loka augunum í smá stund áður en ég fer á fætur til að takast á við nýjan dag.
Takk enn og aftur fyrir fallegu kveðjurnar- þið eruð yndisleg !


0 Comments:
Post a Comment
<< Home