Operation Panama
Fyrir stuttu sat ég og las Ferðin til Panama fyrir drenginn minn. Þetta er svo yndisleg bók, svo látlaus og saklaus með stórkostlegan boðskap sem er ekki troðið upp á lesandann á neinn hátt. Lítil saklaus dýr leggja upp í langferð til að setjast að í landi þar sem allt á að vera fullkomið. Eftir að hafa gengið í stóran hring enda þau heima aftur og eru hvergi ánægðari. Þetta er bara nákvæmlega það sem er svo oft að gerast..við erum með allt sem við þurfum beint fyrir framan okkur! :)
Nú hef ég lagt upp í mína langferð og ferðinni er heitið til Panama þar sem allt er svo gott. Ég þarf að ganga þennan klassíska hring í heimahögunum, einungis til þess að enda aftur á upphafsstaðnum og sjá hvað allt er gott nákvæmlega þar sem ég er stödd núna. Í rauninni held ég að ég sé nú þegar hálfnuð í ferðalaginu, nú þarf bara að setja í sig kraft og klára dæmið til að geta komið aftur heim og notið alls upp á nýtt.
Þið skiljið líklega ekkert hvert ég er að fara með þetta blogg, enda ekki von þegar fólk talar svona í kringum hlutina eins og ég er að gera núna. Mér fannst þessi Panamapæling bara svo heillandi að nú kalla ég meðferðina mína "Operation Panama".
Í einn og hálfan mánuð hef ég verið í dagdeildarmeðferð við átröskun. Nú er ég hálfnuð í þessu prógrammi, einn og hálfur mánuður er eftir og mér miðar vel á leið minni. Þetta var erfitt..og er ennþá erfitt. En ég finn batann koma hægt og bítandi og viljastyrkinn aukast með hverju andartaki. Ég er í hóp með nokkrum hressum konum og meðferðaraðilarnir eru allir frábærir og á hverjum virkum degi vinnum við sigra, klifrum yfir ýmsar hindranir og peppum hvora aðra upp.
Þetta er ótrúlega gefandi og styrkjandi en líka krefjandi og erfitt. Það er engin leið að lýsa því hvað svona vinna getur gert mann þreyttan, það er líklega besti lærdómurinn að finna það á eigin skinni.
Þessa dagana hef ég verið að átta mig á því hvað ég hef í langan tíma verið hörð við sjálfa mig og gert óraunhæfar kröfur til mín. Óraunhæfar kröfur bjóða upp á að mér mistakist og finnist ég þar af leiðandi frekar mislukkuð. Þetta er eilífur vítahringur sem ég er tilbúin að rjúfa núna. Hingað og ekki lengra.
Það er svo mikið meira í lífinu sem mig langar að einbeita mér að. Mig langar að sinna áhugamálum og gera eitthvað skapandi, nostra enn meira við börnin mín og njóta lífsins með manninum mínum og vinum mínum og fjölskyldumeðlinum. Það er svo gott að langa, þá veit ég að ég er til og að ég er á lífi. Þá veit ég að ég hef einhvern vilja þarna undir veiku konunni sem á einhverjum tímapunkti braust fram. Nú er ég að skilja við þessa veiku konu og skilnaðarferlið gengur vel.
Ég hef verið svolítið tætt undanfarið- það má segja að ég hafi upplifað allar árstíðirnar í röð suma dagana en það er ekki alltaf þannig. Ég hef verið reið, döpur, kvíðin, pirruð, ánægð, spennt, glöð, jákvæð, neikvæð, bjartsýn, svartsýn... eins og allir- ég hef bara skipt ansi ört á milli þessara tilfinninga sem er ekkert sérlega jákvæður kostur í fari manneskju. En á þessum tímapunkti er það eðlilegt. Smám saman kemst jafnvægi á þetta tilfinningarót- samhliða heilbrigðum fæðuvenjum og því að ég verði sáttari við sjálfa mig.
Ég er farin að sjá glitta í sjálfa mig undir öllu þessu drasli sem liggur á yfirborðinu og ég er hreint ekkert eins slæm og ég hélt. Ég er bara venjuleg ung kona, ekkert verri en allir hinir :) Það er mikið gott að upplifa þá tilfinningu- það er ekkert slæmt að geta elskað sjálfan sig.. það er í raun skilyrði. Geti ég ekki elskað sjálfa mig þá mun ég líklega aldrei hafa trú á því að ég sé einhvers megnug.. og þar af leiðandi mun ég aldrei reyna að takast á við neina hluti. Hversu spennandi er það ? ;)
Eins og ég sagði áður, þá er ég líklega hálfnuð- jafnvel komin aðeins lengra en það. Ég borða reglulega, þyngist hægt og bítandi og hlúi að sjálfri mér. Gríp í útréttar hendur og geri allt til að ná bata. Ég er farin að hlakka til að koma aftur heim, kannski pínulítið veðurbarin með blöðrur á fótunum- en fullkomlega sátt :)
No worries - það verður engin veikindafýla af þessu bloggi þó ég hafi ausið svona hressilega úr mér núna - það er bara svo gott að koma þessu frá sér.
Love you all :*
Knúsur
Eygló


12 Comments:
Takk fyrir að deila þessu með okkur elsku Eygló. Þú ert svo frábær penni, kemur þessu svo vel frá þér. Þetta er heilmikið sem þú ert að takast á við og ég er alveg fullviss um að þú kemst á leiðarenda, þar sem þú getur notið þín og alls þess frábæra sem lífið hefur uppá að bjóða.
Takk fyrir að vera til Eygló, þú ert frábær !!!
Elsku best flotta vinkonan mín! Þú ert hetja!
Ferðin til Panama er ein yndislegasta bók sem ég veit um - m.a.s. mamma las hana fyrir okkur systurnar endrum og eins hér í "den tid".
Það er svo margt sem mig langar að segja þér, en kem ekki alveg orðum að og veit ekki hvort það á heima hér :P
En ég vil segja þér að ég er óendanlega stolt af þér! Og mér þykir svo vænt um þig *knús*
Mundu að þú ert einstök og ert frábær eins og þú ert!
Hugsaðu bara hvað það verður gott að hvíla lúna fætur og slaka á þegar "heim er komið eftir þessa ferð"!
*knús og kram í tætlur sætustu*
- Ásta Sóley
Þú ert frábær Eygló á allan máta alveg meiriháttar penni eins og svo oft hefur komið í ljós, og frábær persóna sem mér þykir ofsalega vænt um. Við höfum öll gott af því að lesa ferðina til Panama og hugsa aðeins um hana.
Bestu kveðjur Heiða Björg
Vá ! Takk fyrir æðislega falleg komment- þið eruð nú meiri æðibitarnir, allar :)
Elsku litla, stóra, fallega stelpan mín!
ÉG ELSKA ÞIG
mamma
Frábærlega vel skrifað hjá þér elsku vinkona! Er ekkert smá stolt af þér, þú stendur þig svooo vel :o* Mér þykir ótrúlega vænt um þig og litlu hittingana okkar og vona að þeir haldi áfram.
Risa knús á þig mín kæra.
kv, Sólveig
*bráðn*
takk, báðar tvær ! :) Elska ykkur líka :)
Sólveig- já við skulum halda þessum litlu hittingum okkar inni, mér finnst þetta góð byrjun á vikunni þegar við getum spjallað og flissað í smá stund yfir kaffi... eða í þínu tilviki kekkjóttum kakóbolla! haha ;)
Elsku Eygló mín. Fallega, góða, skemmtilega, fyndna, sterka stelpan sem ég kynntist fyrir 6 árum síðan.
Ég hef fulla trú á að þessi barátta sé ekki lögð á þig að ástæðulausu. Þú ert fullfær um að vinna hana og ekki bara vinna hana heldur vinna í henni og við hana með stæl og árangri.
Ég óska þér alls hins besta elskan mín.
kv. Ester júnímamma :)
Æ takk, Ester mín :*
Eslku Eygló! Þú ert alveg hreint ótrúleg manneskja. Ég held að þú sért með sterkari og duglegri konum (*hóst* - stelpum) sem ég veit um. Þú ert yndisleg og mér hefur þótt ótrúlega vænt um þig alveg frá fyrstu kynnum í skólanum.
Ég óska þér alls hins besta, vonandi náum við að hittast bráðum. Þú veist af mér, ég á öxl og líka grín. Vertu bara í bandi þegar þú vilt og treystir þér til. Ég er alltaf laus :)
Þín Heiða bekkjarsys.
Elsku Eygló mín
Sendi þér endalaust stórt knús og baráttukveðjur. Þú ert algjör hetja að opna þig svona og ég er svooo stolt af því að þekkja þig. Haltu áfram að vera svona frábær, því það ertu!!
Bestu kveðjur,
Tinna Ósk
Takk krúttur :*
Ég er alveg orðlaus- ekkert smá sætar kveðjur!! :)
Post a Comment
<< Home