Army of me

Wednesday, August 26, 2009

Tímamót

Tíminn er svo afstæður. Sumt sem gerðist í síðustu viku finnst mér órafjarri. Það sem gerðist fyrir 6 árum er hins vegar margt svo ljóslifandi í minningunni þrátt fyrir að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan þá.

Ísak Aron, frumburðurinn minn og litli sonur minn byrjaði í skóla í dag. Mér finnst það alveg ótrúlegt. Mér finnst svo stutt síðan hann var varnarlaus hvítvoðungur, algjörlega háður okkur og grandalaus um umhverfið. Mér finnst svo stutt síðan Anton fékk son sinn í fangið í allra fyrsta sinn, blautan og vafinn inn í handklæði. Ég man ennþá hvað hann var stoltur þegar hann virti fyrir sér þennan agnarsmáa en fullkomna einstakling og sagði með blíðri röddu: "hæ Ísak". Hann var algjör Ísak frá fyrsta andartaki, þessi elska :)

Við fylgdum honum í skólann í morgun og horfðum á hann ganga í allra fyrsta sinn inn í skólastofuna með skólatöskuna (sem mér fannst svo lítil þegar ég keypti hana) sem þakti nær allan bakhluta litla töffarans. Þetta eru svo mikil tímamót í lífi manns- ég man ennþá eftir eftirvæntingunni hjá mér sjálfri, kvíðanum og spennunni. Mest var Ísak þó spenntur fyrir því að fá, í allra fyrsta sinn, að taka með sér nesti. Krúttlingur með banana, gulrætur og rúsínur í nestisboxi.

Ef tíminn heldur áfram að líða svona hratt, líður ekki á löngu þar til ég verð farin að kvarta undan unglingsárunum og fylgjast með drengnum tækla þau, vonandi á góðan hátt.

Núna á ég barn í grunnskóla.. er ég þá formlega orðin gömul ?

P.s set vonandi inn mynd sem fyrst

2 Comments:

At August 26, 2009 3:57 AM, Anonymous Anonymous said...

Já það er allveg rétt elsku Eygló þetta líður allveg ótrúlega hratt svo það er um að gera að njóta augnabliksins. Fyndið að finnast mest spennandi að hafa með sér nesti litla matargatið hihi.Litla stelpan mín byrjaði líka í skólanum í gær sko í öðrum bekk í Menntó enginn busu lengur úff ég er sennilega orðin gömul held að þú sleppir ennþá við þann titil hihi. Knús frá mér Heiða Björg

 
At August 26, 2009 7:14 AM, Anonymous Anonymous said...

segðu! ég trúi ekki öðru en sonur minn sé svona ógurlega bráðþroska því það er jú ekki nema ár eða svo síðan hann fæddist og samt fær hann skólaboðunarbréf og alles ;) Greinilega eitthvað álíka þessi flottu drengir okkar :)

hilsen - ásta og nökkvi

 

Post a Comment

<< Home