Army of me

Tuesday, January 20, 2009

Eitthvað lét þessi morgundagur sem ég lofaði bíða eftir sér svo þetta jákvæða blogg mitt kom aldrei. Ég er ekki alveg í stuði fyrir það núna en það kemur bráðum ;) ég er þessa dagana svo mikið að bíða eftir því að það komi dagur í meira en nokkrar mínútur á dag!! Mér finnst bara vera myrkur allan daginn! Samt skárra þegar það er snjór því þá er bjartara yfir. 

Títla litla er orðin nokkuð hress eftir veikindin þó hún sé reyndar afleit í mallanum eftir sýklalyfin en ég vona að það fari að lagast, hundleiðinlegt að taka margar kúkableyjur á dag og svo finnst henni líka ekkert gott að vera með þetta mull á botninum..skiljanlega kannski ! ;) 

Annars er ekki rassgat að frétta, allt við það sama og við höfum það bara gott. 

Hafið það gott elskurnar, ég ætla að fá mér pulsu 

2 Comments:

At January 21, 2009 1:12 AM, Blogger Hrafnhildur said...

Baráttukveðja í mömmustússið! ekki alltaf létt en ég vona að þið séuð búin með ykkar skammt af pestum í bili... og dagarnir lengjast ég lofa...
kv Habba

 
At January 21, 2009 6:33 PM, Blogger Eygló said...

já það er eins gott að þú sért ekki að plata, Habba! ;)

 

Post a Comment

<< Home