Army of me

Friday, October 17, 2008

Hið smáa :)

Ég er komin yfir kreppusjokkið og allan pirringinn, eða svo gott sem. Litla títla sefur úti í rigningunni og stóri títli er í leikskólanum. Hann hefur hlakkað til föstudagsins alla vikuna því það er slátur í matinn hjá þeim í dag. Dásamlegt að vera 5 ára og geta glaðst yfir svona litlum hlutum:) elsku kúturinn minn.

Ég er að nota tímann til að snurfusa aðeins hérna og rembast við að finna húsmóðurgenin en það er ansi djúpt á þeim verð ég að viðurkenna. Veit fátt leiðinlegra en að laga til. Samt elska ég þegar það er allt orðið hreint og strokið. Nýt semsagt afrakstursins en ekki vinnslunnar. Jamm ég er farin að röfla hérna, alveg greinilegt að ég hef engan að tala við. Enda er ég búin að hanga í símanum síðan títla fór út í vagn.


Hey og vitiði hvað? Hún hló í fyrsta skipti upphátt áðan! Ég var að fíflast og kjánast í henni og henni fannst mamma sín svo skemmtileg að hún splæsti krúttlegasta hlátri í heimi á mig og bjargaði þar með þessum rigningardegi :)


Játs það eru ekki bara 5 ára krúttin sem geta glaðst yfir hinu smáa :)

Hafið það gott, krúttin mín
Eygló peygló

4 Comments:

At October 20, 2008 2:33 AM, Anonymous Anonymous said...

Það eru litlu hlutirnir sem gefa lífinu gyldi, reyndar er fyrsti hláturinn nú ekki neitt smá mikill atburður. Bestu kveðjur,Heiða Björg

 
At October 21, 2008 12:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Það var nú voða ljúft að kíkja til ykkar og fá pönnsur um daginn..mér fannst það samt ekkert smátt, heldur heljar stórt og gaman.

Knús
Lísa

 
At October 21, 2008 4:48 AM, Blogger Eygló said...

Lísa: Já það er líka svona hlutur sem er skemmtilegt að gera en maður kannski spáir ekki mikið í :)alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn *knús*

Heiða: Það er rétt, mér fannst þetta ekkert smár viðburður híhí :)

 
At October 31, 2008 4:43 PM, Anonymous Anonymous said...

Æjjj þetta er svo yndislegt... að eiga þessi börn... svakalega er maður nú ríkur...

 

Post a Comment

<< Home