Army of me

Thursday, July 31, 2008

Við erum svo rík!

Sjáið bara hvað þetta eru falleg börn! :) Ég er allavega ofsalega ánægð með þau, bæði tvö. Ísak er að rifna úr monti og vill allt fyrir litlu systur gera. Hann hefur til dæmis það hlutverk á heimilinu að taka bleyjurnar, setja þær í bleyjupoka og henda þeim í ruslarennuna og tekur hann þetta hlutverk sitt mjög alvarlega að sjálfsögðu. Ef hún grætur er hann fyrstur á staðinn til að athuga hver orsökin er og hvort henni sé ekki örugglega sinnt. Svo ábyrgur strákur :)





Sú stutta er vær og góð, veit ekkert betra en að kúra á brjóstinu, hvort sem hún er að drekka eða ekki, og svo er vaggan líka að koma sterk inn hjá henni. Á milli þess sem hún sefur og drekkur, horfir hún á okkur með spekingslegu augunum sínum, bara krúttleg.







Já lífið í Mýrinni er alveg dásamlegt þessa dagana og við njótum þess að vera saman öll fjögur og læra inn á þennan nýja einstakling. Ég verð að segja að ég er afskaplega ánægð með að eiga tillitssamt fólk sem gefur okkur "speis" til að vera í smá næði svona á meðan brjóstagjöfin og öll rútína í kringum bæði börnin kemst á full swing.

En jæja, nú er lítil þyrst dama að vakna og mál að kveðja að sinni

Knús, Eygló sem svífur enn um á bleiku skýji

17 Comments:

At August 01, 2008 12:36 AM, Anonymous Anonymous said...

Þau eru dásamleg börnin ykkar :):) hafið það ofurgott :)
kv. Hjördís

 
At August 01, 2008 1:04 AM, Blogger Unknown said...

Innilega til hamingju með snúlluna Eygló mín hún er alveg gullfalleg

kveðja Gunnur Ösp

 
At August 01, 2008 4:35 AM, Anonymous Anonymous said...

váá sætu börn :O) ég sé mikinn svip með ykkur mæðgunum..


knús í klessu
Lóló

 
At August 01, 2008 5:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Það er nú gott að þetta gekk allt svona vel hjá þér. Ég átti einmitt mínar báðar í framhöfuðstöðu þannig að ég veit hvað þú átt við með þrýstingi. Vonandi haldið þið bara áfram að hafa það svona notalegt fjölskyldan og ég hlakka til að heyra meiri fréttir.

Kveðja
Sigurlaug Íris

 
At August 01, 2008 4:11 PM, Anonymous Anonymous said...

fallegustu og bestustu börn í heimi og þau eru lika frændsystkyn mín nananabúbú...sorry líka smá montin sko.

Knús
Lísa

 
At August 01, 2008 4:43 PM, Blogger Eygló said...

Takk stelpur :D

Lísa- það má sko alveg :)

 
At August 01, 2008 5:03 PM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju með litlu skvísu, hún er gullfalleg alveg.

kv. Linda.

 
At August 01, 2008 5:50 PM, Anonymous Anonymous said...

Þau eru algjör yndi þessi kríli þín!! Ekkert smá vel heppnuð bæði tvö ;-)
Haldiði áfram að knúsast og kúrast og montast eins og þið mögulega getið því þig eigið svo sannarlega inni fyrir því...xxx
T

 
At August 01, 2008 5:57 PM, Blogger Eygló said...

Takk Linda og Tinna :):)

 
At August 02, 2008 4:26 AM, Anonymous Anonymous said...

Æj hvað hún er sæt og þau bæði, ekkert smá lík !

Innilega til hamingju, já þið eruð sko sannarlega rík :)

kv. Ester og Aþena Eir.

 
At August 03, 2008 2:23 PM, Blogger Hrafnhildur said...

Til hamingju með litlu prinsessuna og njóttu bleika skýsins!!
Kær kveðja Habba

 
At August 04, 2008 11:02 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með fallegu prinsessuna ykkar. Mikið er ríkidæmi ykkar!
Gangi ykkur vel í uppeldisstörfunum :-)
Sissa

 
At August 04, 2008 4:11 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn dúllan mín.. hún er ekkert smá falleg ;) algveg gördjös eins og maður segir..

hafið það gott áfram.. knús og kossar
Ína Björg

 
At August 06, 2008 1:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Krúsí krúsí...
njótið lífsins saman ;)
kv Sigrún Heiða

 
At August 08, 2008 10:32 AM, Anonymous Anonymous said...

Þau eru dásamlega falleg, bæði tvö! Innilega til hamingju aftur elskurnar! :)

 
At August 09, 2008 4:46 PM, Anonymous Anonymous said...

Bara smá kveðja frá stolltustu ömmu og afa sem eru í góðum selskap sætasta og besta stóra bróður, hann er algjör engill bara dundar sér og er okkur til ánægju. Vonum að litla prinsessan sé róleg og þið hafið það náðugt.
Ástarkveðjur
amma Jóna og afi Gunni

 
At August 11, 2008 5:47 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh þau eru svo sæt saman! og alveg greinilegt að Ísak er mjög stoltur stóri bróðir!:) En heyrðu ég var að spá hvenær þú ert tilbúin til að fara út með snúlluna þína? Er svona að huga að því hvenær við gætum haft kennó mömmu/bumbu hitting:)

 

Post a Comment

<< Home