Síðasta mæðraskoðunin !
Jæja, þá er síðasta mæðraskoðunin búin- ég allavega fékk ekki nýjan tíma hehe og vona að þetta fari að koma !
Mæðraskoðunin gekk vel, blóðþrýstingurinn reyndar farinn að stríða mér aðeins meira, ljósan sagði að það væri greinilegt að líkaminn minn væri orðinn þreyttur.
Í ljós kom að ég er með mjúkan legháls og tæpa 3 í útvíkkun. Ljósmóðurinni tókst meira að segja að pota í kollinn á litlu dömunni sem hristi bara höfuðið við þessa truflun. Hún er samt ennþá óskorðuð en allar líkur á að hún pompi niður í grindina þegar vatnið fer. Legbotninn er að lækka full mikið á milli vikna svo ég á tíma í annan vaxtarsónar á morgun, vonandi kemur það allt vel út. Legbotninn var 38 fyrir viku en var kominn í 36,5 núna, hafði líka lækkað síðast. Það er pínu furðulegt í ljósi þess að daman er ekki að skorða sig. En þetta er líklega ekkert til að hafa áhyggjur af, hún vildi bara vita hvort að vatnið væri að minnka og hvort lillunni liði ekki örugglega vel.
Ljósan hreyfði svo við belgnum og það var ekki gott..jæks. Nú vonast ég bara eftir verkjum. Ef ég fer ekki í gang þá er það gangsetning á næstu dögum. Hún sagði að það yrði líklega ekkert fyrr en á mánudaginn, jafnvel seinna!!!!!! Fer eftir því hvort ég kemst að því það er víst svo mikið að gera. Hún sagði að ég ef yrði ekki sett í gang á mánudaginn yrði það mónitor á hverjum degi þangað til ég færi í gang eða yrði sett af stað.
Ég sem hélt að konur væru ekki látnar ganga meira en 2 vikur framyfir! Fokk! Anyways..við sóttum vögguna til ömmu minnar og afa áðan (amma var að sauma utan um vögguna og þau eru að fara erlendis á morgun ásamt allri fjölskyldunni minni) og keyptum flass á fínu myndavélina okkar svo nú er bara allt reddí held ég. Vonandi kemur barnið bara um helgina..sendið mér hríðarstrauma!


17 Comments:
Ööööööhhhh ehhhhh úúúúhhh ég skildi ekki helminginn af því sem þú varst að skrifa, er þetta 36,5 gott eða vont og svo framvegis ?
En já væri nú ekki ráð að fara að láta sjá sig kæra dama ?
Ég er alla vegana orðin drulluspennt og hrædd um að hún verði orðin og stór í sængurgjöfina þegar hún loksins plummar sér út.
Knús og love
Lísa
ójá og Hríðarstraumar á fullu frá mér (sem hef ekki grænan grun um hvernig þeir eru).
P.s. ég er ekki að fara til útlanda ;o)
P.s.s. er sammála Gullu held að 27.júli sem færist yfir í 28.júl....koma svo honey.
Lísan
Híhí Lísa þú ert yndisleg :) 36,5 er í lægra lagi miðað við rúmlega 41 vikna meðgöngu og óskorðað barn. En samt ekkert alvarlegt sko ;) Já hún þarf að fara að pota sér út, þetta letidýr:)
Og nei- þú ert ekki að fara til útlanda :) svo þú sérð hana ferska og krumpna híhí- misstir af Ísak í þannig ástandi svo þetta jafnast út núna :)
Elsku kellingin mín!! Ég er nú hissa ef þú verður látin ganga með fram yfir 2 vikur fram yfir (skildi þetta einhver??)! Svoleiðis er bara bannað! Koma svo!! Þú gætir kannski aðstoðað björgunarsveitarmennina á Esjunni sem leita að bera manninum. Bara svona til að hafa eitthvað að gera og kellingin færi þá kannski að snúa sér í skotstöðu! Jæja. Farin í sveitarsæluna skil alla mína orku eftir handa þér ljúfasta ljúfa!
kv
Gunnur
Já finnst það spes að láta þig ganga lengur er 2 vikur framyfir, ég var einmitt að heyra eitthvað af því að núna ætti ekki að fara láta konur ganga 2 vikur fram yfir, bara tíu daga - eða það er eitthvað svona í umræðunni (man samt ekki hvað ég heyrði þetta, maður talar við svo margar babykonur að maður man ekkert hver sagði hvað :)) en allavega gangi þér og ykkur ótrúlega vel :) hugsa til þín og sendi þér hríðarstrauma þó ég kunni það ekkert (var einmitt sett af stað og fann aldrei neinar hríðar áður en keisarinn var ákveðinn) :)
Gunnur- takk mín kæra :) ég þigg alla orkustrauma..spurning um að skella sér bara á Esjuna líka! Hafðu það gott í sveitinni þinni :)
Sigurlaug- takk elskan, ég þigg alveg hríðarstraumana, þeir hljóta að vera sterkir frá þér svona ónotaðir :) Já nú er verið að tala um að láta konur ekki ganga lengur en 10 daga framyfir en það er víst svo mikið að gera að þetta gengur ekki alveg eftir hjá þeim! Pirrandi !!!
Allir í sumarfríi svo það hefur greinilega enginn tíma til að taka á móti börnum á landspítalanum. Vonum bara að þú þurfir ekki gangsetningu og dísin skorði sig bara einn tveir og tíu og komi bara um helgina. Kannski ég komi bara og fari að pota í bumbuna og gá hvort það dugi ekki;o) Knús og fullt af straumum Heiðdís
Hefði sko ekkert á móti því að fá litlu dömuna í afmælisgjöf :)
Gangi þér vel Eygló mín , vonandi kemur litla daman fyrr en seinna!
Hríðarstraumar frá mér ~~~~~~~
knús, Erna
Ohh, vonandi fer þetta að koma hjá þér! Örugglega frekar þreytandi að bíða svona lengi, sérstaklega ef það gerist nákvæmlega ekki neitt!
Ég vona að það gangi vel hjá þér, ég hugsa til þín oft á dag og kíki á bloggið mjög reglulega :)
Farðu vel með þig mín kæra!
p.s. svo verðum við að stofna "föndurklúbbinn" (a.k.a. borða e-ð gott og kjafta - klúbbinn) með haustinu ;)
Erna- já stefnum bara á afmælisgjöf híhí :)
Heiða: Já endilega! Ég er sko miiiikið til í að hittast og "föndra" (sé samt alveg fyrir mér samanlímda putta og svona en það er bara gaman hehehehe)
Heiðdís: Já það ætti bara að banna þessu fólki að fara í sumarfrí..muhaha. Nei..samt frekar pirrandi að komast ekki að í fæðingu vegna sumarfría :S
ohhh en spennó...þú ert örugglega farin að malla af stað (: ég alveg fæ flashback með þessum skrifum þínum. ljósan hreyfði við hjá mér þegar ég var komin með 3 í útvíkkun og EKKERT var að gerast. Eftir potið fór ég að malla af stað. EEENNN það að einhver kona skuli vera látin ganga meira en 2v frammyfir finnst mér mér alveg ferlegt! Vonandi fer dísin að kíkja út...og ég held mig við sunnudaginn (;
smútsh frá Selfossi....gulla
Gangi þér vel kerlingin mín!
Hlakka til að lesa fréttir hér.
KV
Sissa
kvitti kvitt :)
aaaaaaaaaalveg að koma :)
Hæ dúllan mín gangi þér vel bíð spent eftir fréttum ekki segja mér að sunddrotningin sé bæði pínu stríðin og dálítið seinlát getur ekki verið.vonandi þín vegna þarf ég ekki að bíða mjög lengi enn eftir fréttum Risa knús gamla í sveitinni
Jæks, eða seinna !!! ..... En vonandi helfur allt komið vel út með vaxtasónarinn, daman er nú örugglega bara farin að síga niður eða hefur verið óvenjumikið útafliggjandi hehehe.... *hóst* Æj vonandi farið þið nú að fá stelpuskjátuna í fangið það munar svooo miklu. En ég sendi þér enn og aftur hríðarstrauma því ekki þarf ég á þeim að halda í bili.
Verðum í bandi mín kæra, knús í kotið og þúsund kossar.
Kveðja María bumbubína.
Já ég styð Gulluna með sunnudaginn...það er góður dagur
Annars gangi ykkur vel og ég sendi þér mikla hríðarstrauma...Koma svo.......:O)
Knús á ykkur
kveðja frá Selfossi
Lóló
Hæ
bara ítreka hvað allir eru spenntir, mamma mín spyr mig á hverjum degi frétta af þér...
koma svo krúsla.....
Post a Comment
<< Home