Army of me

Wednesday, July 23, 2008

Vá hvað það er pirrandi að vera í bumbuhóp þessa dagana.

Þær poppa þessum börnum út eins og gorkúlum allt í kringum mig og skilja mig eftir í rykinu. Hvað á það eiginlega að þýða ?! Eru konur alveg hættar að ganga framyfir nú til dags ?

Ég er að spá..ef ég væri ekki sett af stað, ætli ég myndi ganga með þetta barn að eilífu ? Kannski myndi enda með að fæturnar myndu lafa út..

Það er sjarmerandi tilhugsun, er það ekki ?

12 Comments:

At July 23, 2008 5:14 AM, Anonymous Anonymous said...

En yndisleg tilhugsun hehe..

Hríðarstraumar !! kv .Ester.

 
At July 23, 2008 5:26 AM, Blogger Eygló said...

takk, Ester ;)

 
At July 23, 2008 5:32 AM, Anonymous Anonymous said...

Jæks... þetta var eitthvað sem mér hefði aldrei dottið í hug... hehe

Þetta er alveg að koma, hver var aftur hin dagsetningin mín, þessi sem þér leist ekki á??

Hugsaðu líka, með hverjum deginum þá er styttri tími sem þú færð að hafa snúlluna inn í þér og þú getur farið út og í bað og gert fullt af hlutum án þess að hafa hana á handleggnum, eða í burðarstólnum... (þetta virkaði á mig,ég naut daga sem ég gat.)

Hríðarstraumar..... á fullu....

kv Sigrún Heiða

 
At July 23, 2008 5:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn um daginn. Þú lítur bara vel út á þessum síðustu dögum, vonandi fer prinsessan að skjóta fram kollinum ;o)
Við kíkjum á ykkur annað slagið hér á netinu.
Bestu kveðjur, Sigrún og Margrét Lin.

 
At July 23, 2008 8:40 AM, Blogger pepsimax said...

Hæ elsku Eygló
Vá hvað ég skil þig vel! Lenti í þessu nákvæmlega sama með reyndar báðar mínar, en með Hildi Emblu þá var ég í svona bumbuhópi og var orðin NETT pirruð á lokasprettinum þegar allir voru að gjóta nema ég... ;)
En, hún kemur á endanum og þá verður biðin algjörlega þess virði.
Knús og klemm á lokasprettinum - og hríðarstraumar auðvitað líka!
Kveðja
Tinna Ósk

 
At July 23, 2008 11:48 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Tinna mín :) já þetta er mega pirrandi tímabil!! En þetta klárast að lokum..vonandi..hehe

 
At July 23, 2008 3:14 PM, Anonymous Anonymous said...

ég get nú rétt ímyndað mér hvað þú hlýtur að vera orðin spennt að sjá skvísuna miðað við hvað ég er farin að hlakka til hahaha
knús í bumbu
t

ps. einn tveir og HRÍÐIR!!

 
At July 23, 2008 3:52 PM, Anonymous Anonymous said...

Ehhh ég get ekki tekið þessa mynd úr huga mér núna, þú sprangandi um í pilsi og baranfætur dinglandi milla lappa þér í takt við göngulag þitt LOL LOL....úff segi ég nú bara.
En já þetta er alveg að koma...finn það á mér. Lördag honey lördag.

Knús kram og slef.
Ó já og hríðir hríðir hríðir.

Love you
Lísa

 
At July 23, 2008 3:53 PM, Anonymous Anonymous said...

P.s. þetta áttu náttúrulega að vera BARNAFÆTUR...

LÍSA

 
At July 24, 2008 2:00 AM, Blogger Eygló said...

Hahaha Lísa- sá ekki þessa villu fyrr en þú bentir á hana ;) já líklega ekkert mjög sjarmerandi að hafa fæturnar hangandi niður..nenni ekki að vera alltaf í pilsi sko!

Og Tinna..já þessi bið er orðin frekar þreytt sko ;)

 
At July 24, 2008 2:06 AM, Anonymous Anonymous said...

hæ snúllan mín. Við skulum rétt vona að þú verðir ekki að eilífu ólétt (ég fékk þann fýling þegar ég gekk með strákinn, það er líka alltaf verið að segja að maður gangi styttra með annað barn..load of crap! (: !) þetta kemur allt og sú stutta ákveður að þetta sé komið nóg (: hríðarstraumar og ég segi að sunnudagur sé þinn dagur... (: knus og kram....Gullan

 
At July 24, 2008 3:29 AM, Anonymous Anonymous said...

kvitti kvitt
koma svo skotta.... :)

 

Post a Comment

<< Home