Army of me

Sunday, July 06, 2008

"Neyðin kennir naktri konu að spinna - kannski átti þessi ekkert nema sængurver, nál og tvinna!"

Við Anton höfum svolítið verið að útrétta um helgina, losa okkur við óþarfa drasl og undirbúa heimilið og okkur sjálf fyrir komu litlu breddunnar. Um helgina hafa eldri konur í spássitúr verið í miklum meirihluta í borginni, enda svo margir sem fóru út úr bænum að tjalda og djamma og hafa gaman. Þar á meðal sáum við gamla konu í sængurveradragt. Já án gríns- hún hefur pottþétt saumað sér dragt úr gamla sængurverinu sínu og ekki einu sinni haft fyrir því að strauja það né þvo áður. Mínum elskulega Antoni varð þá svona skemmtilega að orði - mér finnst þetta eiginlega bara óborganlega fyndið og er enn að brosa að þessum hagyrðingi sem ég giftist.

In other news þá er bara ekkert að gerast. Við erum að leggja lokahönd á það sem þarf að gera en erum enn ekki alveg tilbúin með allt. Það eru 8 dagar í settan dag, ungbarnafötin flest orðin þvegin og komin ofan í skúffu, vagninn enn með skökku hjólastelli niðri í geymslu og skiptiborðið enn í búðinni og svona- ekki allt tilbúið en það er svosem ekkert hundrað í hættunni.

Ég er enn í hálfgerðu stofufangelsi, þar sem ég má ekkert vera að vesenast ein úti ef vatnið skyldi fara því litla bredda er enn óskorðuð og gæti orðið fyrir súrefnisskorti ef naflastrengurinn fer á flakk við vatnsflauminn. Nú er farið að ræða gangsetningu þar sem fæðingarlæknir þarf að hjálpa þrjóskupúkanum að komast ofan í grindina í fæðingunni. En svo gæti hún allt eins snúið sér núna og skorðað sig og það væri þá bara gott mál.

En þá get ég líka sagt ykkur að hún kemur ekki strax. Ég er nefnilega eins og fíll og ef það tíðkaðist ekki að setja konur í gang eftir x langan tíma hefði ég líklega gengið með Ísak í 21 mánuð að hætti fíla og virðist ætla að reyna það aftur núna.

Jámm semsagt allt með kyrrum kjörum. Ekkert að gerast, allir pollrólegir.

6 Comments:

At July 07, 2008 2:44 AM, Anonymous Anonymous said...

Hi hi hefði viljað sjá konuna í sængurveradragtinni. Gott að allt gengur vel og sú stutta mætir bara þegar hennar tími er komin allveg sama hvort ættingjarnir eru á landinu eða ekki. Kv.Heiða Björg

 
At July 07, 2008 7:43 AM, Anonymous Anonymous said...

Gott að allt er með kirrum kjörum í Álftamýrinni. Konan í draktinni er snild. Skvísan verður sunddrotning og vill ekki skorðast
vonandi gengur ykkur allt í haginn og allir hafi það gott.
Risa knús
Gamla í sveitinni

 
At July 07, 2008 4:43 PM, Blogger Eygló said...

Já Heiða Björg, ég held þetta sé sjálfstæð stúlka sem skeytir engu um það að allir ættingjarnir séu að fara af landinu bráðlega! ;)

Erla- takk fyrir sætu kveðjuna:) Já kannski hún verði bara sunddrottning, spurning um að athuga með sundnámskeið bara strax hehe.

 
At July 08, 2008 6:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Unga daman er ákveðin og fer sko greinilega sínar eigin leiðir, enginn vafi á því að hún á eftir að stjórna þegar heim er komið hehehe.
En gamla konan hlýtur að hafa tekið sængurverið mitt sem fauk af snúrunum í "óveðrinu" í síðustu viku ....HAHAHA.....
Gangi þér allt í haginn sæta og hittumst við fyrsta
Kv María

 
At July 09, 2008 9:44 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ.
Jæja þá er mín sest og bíður bara eftir þinni :)
Ég ætla að giska á dag núna og ekki breyta... Segji 25. júlí.
Takk fyrir góðar kveðjur! :)
kv Sigrún og Pjakkur

 
At July 09, 2008 11:51 AM, Blogger Eygló said...

Sigrún! 25.júlí?? úfff give me a break :S Ég ætla nú helst að vera búin þá *væl* Vonandi ertu ekki sannspá hehehe. En innilega til hamingju aftur með sæta litla pjakkinn þinn :)

María: Takk fyrir síðast, ógó gaman að hitta ykkur mæðgin :) Og daman..já þetta er lítil bredda sem lætur engan stjórna sér, svo mikið er víst!

 

Post a Comment

<< Home