Einvera og annað
Jæja já, þá er ég útskrifaður leikskólakennari og við búin að halda upp á það og fimm ára afmæli drengsins með ágætum. Veislan var svaka fín, athöfnin hátíðleg og ekki spillti veðrið fyrir. Við Ísak fengum mjög góðar gjafir og viljum nota tækifærið og þakka kærlega fyrir okkur! Ísak er mikið búinn að leika með dótið og ég hef spókað mig um með nýtt skart upp á hvern einasta dag og gluggað í áhugasömum bókum svo fátt eitt sé nefnt.
Á sunnudeginum eftir útskriftina fékk Ísak svo strákavini sína hingað heim í afmæli. Það gekk alveg ágætlega en ég þakka samt fyrir að þetta skuli bara vera einu sinni á ári (og bráðum tvisvar..úfff). Hér gekk á ýmsu en hápunkturinn var líklega þegar þrír drengir rifust hástöfum um það hver þeirra prumpaði mest. Þá var auðvitað æskilegast að eiga vinninginn í þeim efnum og enginn var til í að láta í minni pokann.
Hér gengur lífið annars bara sinn vanagang, Ísak er alltaf jafn ljúfur og þægilegur, ég er eiginlega alveg hissa á því hvað hann er góður, svona miðað við hvað ég var og er sjálf mikil bredda. Enda vill pabbi hans meina að hann eigi heiðurinn að þessum góðu genum.
Bumbudísin dafnar aldeilis vel, við vorum send í aukasónar um daginn eftir eina mæðraskoðunina þar sem hún er í óstabílli legu og því alltaf að skipta um stellingu. Ef vatnið fer núna þarf ég semsagt að leggjast og hringja á sjúkrabíl. Sé það ekki alveg fyrir mér í Kringlunni eða eitthvað svo mig langar helst ekki að fara neitt ein! Sú stutta mældist 12 merkur á fimmtudaginn og áætluð fæðingarþyngd er 16 merkur ef ég geng ekki framyfir. Annars gæti hún orðið aðeins stærri. Úff..pant ekki ganga framyfir! Ísak var bara tæpar 14 merkur, svo fín stærð ;) Annars eru akkúrat 3 vikur í settan dag í dag, þetta líður hratt.
Ég er ein heima eins og flesta aðra daga og er að dútla við að þvo bleik lítil föt ( Já það var tékkað aftur á kyninu í aukasónarnum og þar var nokkuð greinilegt að ekkert tippi er á þessu barni). Ég nenni ekki einu sinni út því ég hef engan að "leika við". Þá finnst mér betra að draga bara fyrir gluggana og útiloka sólina á meðan ég þvæ föt og geng frá. Þá missi ég líka bara vatnið í skjóli myrkurs ef það gerist á annað borð, og enginn þarf að sjá mig liggja rennblauta í Kringlunni og gera sér það í hugarlund að ég hafi migið á mig.
Eigið góðan dag !


11 Comments:
Hæ ljúfust og takk fyrir síðast!
Ég var koma heim úr yndislegri mæðgnaferð til Köben og nenni satt að segja ekki alveg strax til London...ætli ég fari ekki á morgun eða hinn...
En við gætum leikið okkur saman í dag ef þú ert í stuði til að draga frá...? Ég gæti kíkt á þig í Álftamýrina og þú gætir alveg misst vatnið ef þér sýnist svo ;-)
heyri í þér á eftir...knús
T
Þú ert sem sagt enn með kúluna, var farin að halda að eitthvað væri búið að gerast :) ekkert blogg og engin hreyfing.... :)
Geggjað hvað allt fór vel og allir eru ánægðir!
Hvaða dag ertu aftur sett? Hljómar voða stutt í þetta!!
Kv í kotið
Sigrún Heiða
Til hamingju með útskriftina! Hver veit nema ég kíki á þig einhvern daginn eftir vinnu, nennan er samt frekar lítil eftir 6 á daginn en kannski einhvern daginn sem ég vinn bara til fjögur. Knús bið að heilsa, Heiðdís sem er í Árbænum.
Takk fyrir heimsóknina, Tinnslan mín :*
Sigrún Heiða: það er styttra í þig heldur en mig ;) ég er sett 14.júlí, akkúrat 3 vikur í dag í settan dag.
Heiðdís: Þú ert sko velkomin í heimsókn, ég hef ekkert að gera á daginn nema taka til og bora í nefið og svona hehe. Hringdu bara í mig áður svo þú farir ekki fýluferð!
Til hamingju með útskriftina Eygló mín :)
En vóó hvað það er stutt í þetta!!
Gangi þér vel í lokasprettinum :)
Kveðja að norðan,
Jóhanna kennópía
Hæ hæ já þið eigið rosalega ljúfan dreng ég man allveg eftir litla rauða ljóninu sem við turtildúfurnar og Lísa stóra systir réðum ekkert við í Skaftafelli forðum hihi. En það hefur nú mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og sumir róast mikið :) Hafðu það gott áfram og kíktu í heimsókn við tækifæri.
Heiða Björg
Jóka- takk sömuleiðis :)
Og Heiða Björg: já það fara ýmsar mis fagrar sögur af uppátækjum mínum í barnæsku..úff. Ætli ég fái ekki bráðum að reyna þetta á eigin skinni hehehe
já ég skil..
einmitt 10 dagar eftir í dag hja mer....
:o)
Elskuleg.
Þú varst sko ekkert óþæg!
En Anton var reyndar mjög ljúft barn líka...
Til hamingju með áfangann og gangi þér vel næstu vikurnar!
Kær kveðja,
Sissa
Æ takk Sissa mín :) maður kunni kannski að haga sér svona skikkanlega í fyrstu bekkjum skólans, enda vorkenndi ég þér alltaf svo mikið að þurfa að takast á við ólátabelgina í bekknum mínum, nefnum engin nöfn ;)
Hæ sætust og takk fyrir síðast.
Skemmtilegt blog:) Heyri í þér fljótt aftur, ætla að skila af mér þú veist áður en litla snúllan fermist og þarf þá engan brjóstagjafapúða lengur:):):)
Post a Comment
<< Home