Veikindabras
Jæja... best að halda aðeins áfram að tuða og kvarta og kveina..
Ég fór í mæðraskoðun á þriðjudaginn og það kom eiginlega bara allt illa út úr henni..lucky me. Þar sem ég er með einhverja plúsa í þvagi þurfti ég að trilla með þvagprufu á heilsugæsluna snemma morguninn eftir..ógilega gaman! ;) Mér fannst ég vera að viðra hundinn minn nema ég þurfti ekki að taka með mér kúkapoka fyrir pissuglasið mitt. Sweet.
Í dag hringdi svo ljósan og það ræktaðist fullt af stöffi í þvaginu, og svo einhver dularfull blóðkorn sem spítalinn er að rannsaka núna. Jibbí kóla. Plan helgarinnar er því hvíld og vatnsdrykkja og rólegheit og eitthvað svoleiðis leiðinlegt.
Nú jæja..við skelltum okkur í BabySam í gær til að versla óróa..og þetta var sko tilraun númer tvö svo það sé á hreinu. Þegar við vorum nýkomin inn í búðina tekur litli stúfurinn upp á því að æla yfir sjálfan sig og pabba sinn og í ruslatunnuna í búðinni ! Namm!! Svo ekkert varð úr verslunarleiðangrinum í þetta sinn.. við ætluðum líka að koma við annars staðar og kaupa skúringagræjur en það hefur frestast líka tvisvar. Spurning um að vera ekkert að fara í búðir..hmm.
Nú er litli prinsinn nýbúinn í sturtu og liggur undir sæng, horfir á Mikka mús og borðar ís, orðinn brattur og fínn. Mamman liggur inni í rúmi með tærnar upp í loft og lætur sér leiðast..og bloggar ;) það væri fínt að vera í sumarbústað núna því þá gæti ég allavega talið kvistana í loftinu!


7 Comments:
Vonandi lagast þetta allt saman, núna getur þú samviskulaust slappað af og þarft ekkert að hafa áhyggjur af því að þrífa og svoleiðis, barni kemur hvort sem það er búið að skúra eða ekki. Sendir bara hersveit í að þrífa um leið og þú ferð á fæðingardeildina (mamma og tengdó eða eitthvað svoleiðis). Hugsa til þín flotta kona.
Æ takk Sigurlaug Íris mín, gaman að fá komment frá þér mín kæra :)
Jájá ég blikka einhvern í að þrífa hehe..verst að það verður nánast enginn á landinu ;) en það reddast eins og hvað annað ! Við höfum nú komist langt á þessu orðatiltæki!
Hvíldu þig bara og vertu ekkert að hafa áhyggjur af þrifum það reddast eins og þú sagðir. Svo held ég líka að litlu dúllunni sé allveg sama hvort það er ný skúrað eða ekki þegar hún mætir. Á misjöfnu þrífast börnin best ! En svona í alvöru þá er nógur tími til að hafa áhyggjur af þrifum, þakkaður fyrir að búa ekki fyrir austan fjall :) Kveðja Heiða Björg
Úfff já Heiða Björg, ég má sko þakka fyrir það !!! Það er þá allavega meira drasl þar heldur en hjá mér...muhahahaha. Nei segi svona. Æjá..þetta reddast alltsaman ;)
mér dettur bara eitt í hug:
iss PISS og pelamál! ertu viss? ertu í félaginu "kúkur og PISS"?
don´t worry be happy!
love you
t
ps.ég er ekki full...hahaha
Æ, litli snúðurinn... finn alveg til með honum sko, kannast við það að vera með veikt barn þegar eithvað er á planinu, var að koma heim úr 6 daga ferð frá Austurríki og Binrir Smári var "BARA" veikur í 4 daga :S
Þessir strumpar láta hafa mikið fyrir sér, þessar elskur.
En hey næst fer ég ekki með hann með mér úr til útlanda... allavega á planinu sko !! Ekki taka snúðinn með næst í búð... tíhí...
p.s. vona að þú náir húmornum mín kæra.
Sakna þín alveg heilan helling finnst þú e-ð svo langt í burtu nuna þegar ég er flutt upp í breiðholt... en kíki á þig í vikunni...
Þúsund kossar og samúð með pissið þitt, kannast e-ð við svona vesen...*dæs*
Kveðja María sem er allt í einu svooo langt í burtu *sakn*
Ohh já María, það er svo tómlegt án þín!!! Og svo er kellingin að brjóta niður alla íbúðina ykkar held ég! Þvílíku lætin í þessari frenju!! *hnuss*
Hlakka til að sjá þig krúslan mín :*
Post a Comment
<< Home