Little things..
Það er ótrúlegt hvað litlir hlutir geta skipt mann miklu máli, svona þegar maður gerir sér grein fyrir þeim.
Í gær var ég að tala um það við Anton minn að mér þætti alveg stórfurðulegt að ég skyldi geta sofnað með drekann minn (sjá færslu aðeins neðar) vel skorðaðan undir bumbu og milli hnjánna á hverju kvöldi og að hann væri enn svona vel skorðaður þegar ég vaknaði á morgnana.
Það kom auðvitað á daginn að yndið mitt eina lagar drekann á nóttunni. Mér finnst þetta svo yndislega fallegt.
Hann hafði ekki einu sinni orð á þessu, bara lagaði drekann og hélt áfram að sofa eins og ekta herramaður. Alveg hægt að bráðna yfir svona litlum og sætum hlutum :)
Svo við skulum muna það.. það eru litlu hlutirnir sem skipta miklu máli!


13 Comments:
Æ hvað þetta er krúttað eitthvað! Þegar ég var preggý þá vaknaði ég náttla stundum dáldið oft á nóttunni til að pissa, seinni hluta meðgöngunnar var ég farin að nota svona snúningslak sem var ofan á lakinu okkar og alltaf þegar ég kom til baka af klóstinu þá var Brynjar búinn að laga snúningslakið, gera það svona slétt og fínt svo ég gæti lagst beint aftur...
við eigum góða menn :)
Æ já við erum heppnar, höldum fast í þá, Sigurlaug :)
Æ múslurnar, maður bráðnar bara alveg við að lesa svona lagað;)
Já það eru litlu hlutirnir sem skipta máli, munum eftir þeim :) Fór í bakarí um daginn og kom svo við í vinnunni hjá mínum kalli þar sem hann var einn á kafi í smíðavinnu og hann talaði um það í marga daga hvað það hefði verið notalegt.Eitt vínarbrauð bjargaði deginum hihi. Kveðja Heiða Björg
Við þurfum bara að passa okkur að muna eftir öllum þessum litlu hlutum þegar eitthvað gengur ekki alveg eins og við viljum, hihi, kemur stundum fyrir. Þá rifjar maður þetta upp og man afhverju maður elskar viðkomandi.
Þú átt greinilega góðan mann Eygló mín, auðvitað ekki annað hægt fyrir svona frábæra manneskju.
Æ takk stelpur fyrir skemmtileg og krúttleg komment!
Já Sigurlaug Íris- best að muna litlu sætu hlutina ;) þeir eru ótrúlega margir þó maður gleymi stundum að þakka fyrir þá..hehe
Já, þeir eru nú ósköp indælir greyin. Það var til dæmis nokkrum sinnum í vetur að Birkir fór aðeins á undan mér í vinnuna, svo þegar ég kom út var hann búinn að skafa bílinn minn.
Yndislegt! :)
já þessir litlu hlutir eru yndislegir, en ég á náttla engan mann ...en systir mín er voða dugleg í þessu. Koma með beyglu heim úr vinnunni handa mér og svona:)
Já stelpur, það er gott að eiga góða að, hvort sem það eru mennirnir manns, systur, mömmur eða vinir ;) Við erum heppnar !
Það er svo langt síðan ég hef litið við hjá þér, en þetta er allt svo satt og rétt hjá ykkur meira að segja eftir 40 ár segi og skrifa fjörtíu ár, þessi elska mín beið með kjöt í karrý þegar ég kom heim frá Selfossi í dag, og svo bara stóð ég upp frá matarborðinu og fór á næsta fund og hann gekk frá í eldhúsinu og héllt áfram að þvo þvott. Þú átt líka góðan pabba Eygló mín, ég held að það sé fátt sem hann ekki vill gera fyrir okkur. Ástarkveðja, mamma
Já mamma, pabbi er algjör perla :)
Það er satt með litlu hlutina, reyndar kom ég út um daginn og enginn bíll...hélt að sjálfsögðu að honum hefði verið stolið..en þá hafði minn maður stolist á honum til að setja á hann bensín.. Litlu hlutirnir skipta svo sannarlega máli og maður má ekki vera of fljótur að dæma.
Knús
Lísa p.s. hlakka til að sjá drekann.
Lísa: Æ en sætur! Og já drekann hlakkar líka til að sjá þig ;)
Post a Comment
<< Home