Army of me

Friday, April 04, 2008

Árs-uppgjörið

Það er ótrúlegt hvað maður tengir ýmsar tilfinningar við tónlist. Ég til dæmis get ekki hlustað á yfir helming laganna í ipodinum mínum því þau minna mig á spítalann. Ég finn lykt, heyri hljóð og upplifi neikvæðar tilfinningar þegar ég hlusta á þessi lög. Sem er frekar fúlt þar sem bróðurparturinn er Snow Patrol og ég elskaði þessa hljómsveit.

Um þessar mundir á ég árs afmæli svo þessi árstími og þessi lög bara eiga hreinlega ekki saman. Ég man að ég sofnaði með ipodin í eyrunum á hverju kvöldi og vaknaði í sömu stellingu daginn eftir. Svo var það ósjaldan að ég hækkaði ipodinn í botn þegar það var hasar á spítalanum til að heyra ekki gólin - sem þó komu í gegn.

En þessir tveir mánuðir eru búnir og koma aldrei aftur. Sem betur fer.

Núna er ég á allt öðrum stað. Ég á von á prinsessu með mínum elskulega Antoni og ég er að klára háskólanám. Hefði aldrei giskað á þetta fyrir ári. I´ve come a long way, baby. Nú þarf bara að massa þessa lokaritgerð og rúlla svo upp eins og einu þróunarverkefni og svo get ég haldið út í vorið, reynslunni ríkari.

Já ég er alltaf svona hugsi þegar ég á að vera að læra, þá er svo auðvelt að láta hugann reika eitthvað út í buskann! Alveg merkilegt.

9 Comments:

At April 05, 2008 10:14 AM, Anonymous Anonymous said...

Já svo satt..fáránlega auðvelt að fara út í svakalegar hugsanir þegar maður á að vera að læra! Hvað er það! Annars bara lets keep it up og útskrifumst í vor:D Þetta er allt að smella saman! Og það verður sko samkeppni hjá snúllunni þinni og Jóku um gaurinn hennar Fanneyjar;)

 
At April 07, 2008 2:31 AM, Anonymous Anonymous said...

You´ve come a long way beibí! Mér finnst bara yndilsegt að sjá hvað þú hefur náð góðum bata miðað við allt og allt! Þú ert yndisleg og frábær manneskja ekki gleyma því ....

-kv.Ásta

 
At April 07, 2008 3:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Var einmitt eitthvað að hugsa um helgina að það væri að koma ár síðan. En nú eru bara bjartir tímar frammundan enda ertu svo frábær stelpa og getur þetta allt eins og ég hef alltaf sagt. Love you, Heiða Björg

 
At April 07, 2008 3:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Ohhhh það verður svooo næs hjá okkur í sumar að geta farið að undirbúa komu krílana okkar og notið þess að vera til og þurfa EKKI að fara í skóla í haust!!!:) Get sko ekki beðið!!! Hahah svo þyrftum við ólétturnar hópnum eiginlega að stofna einhverskonar mömmuklúbb, við erum allavega nógu margar;)
kv. Fanney

 
At April 07, 2008 4:55 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk fyrir fallegu orðin, allar :) Já það hefur ræst úr mér hehe. Og nú er bara skólinn að klárast og allt í réttum farvegi, merkilegt nokk!

Og Fanney.. já ég er til í svona bumbugrúppu! Það væri ógeðslega gaman, í alvöru talað, að hittast í smá svona saumóstemningu með krílin!!

 
At April 07, 2008 6:54 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ
Er barnalandssíðan dottin út?
það kemur bara forsíðan þegar ég ætla á hana!
Langaði svoað sjá bumbumyndir! :)
Hvaða dag ertu sett?
kv Sigrún Heiða

 
At April 07, 2008 8:59 AM, Blogger Eygló said...

Sigrún Heiða : við erum að vinna í því að virkja hana aftur, hún verður vonandi opnuð bara á næstu dögum :) Þar eru einhverjar bumbumyndir, set inn þær nýjustu þegar síðan verður opnuð:) ég er sett 14.júlí

 
At April 08, 2008 4:20 AM, Anonymous Anonymous said...

Sæl elskuleg.
Gaman að lesa um bumbuna! Vissi ekki að þú hefðir verið veik en gott að þú hefur náð svo góðum bata. Ég fylgist með þér áfram og vona að allt gangi að óskum. Ég á líka litla krabbastelpu, fædda 7.júlí 2005 (fertugsbarnið mitt). Hún er æði...og þín verður það líka.
Knús og kveðjur
Sissa....gamla kennslukonan!

 
At April 08, 2008 6:16 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk Sissa mín :) Gaman að fá svona falleg orð! Ég fylgist alltaf með blogginu þínu, maður verður að vita hvað gamli kennarinn er að bralla ;)

 

Post a Comment

<< Home