Sannkölluð kjarnafjölskylda!
Jæja, við skelltum okkur í sónarskoðun í gær og svo var ég að koma úr mæðraskoðun áðan og á viðtal við fæðingarlækni á morgun- það er full time job að vera ólétt!
Okkur var aldeilis komið á óvart í sónarnum þegar ljósmóðirin grandskoðaði barnið og kyn þess (að okkar ósk) og sagði svo : þetta er lítil dama! Við misstum að vonum andlitið þar sem við sáum bara fyrir okkur annan dreng, mig var meira að segja búið að dreyma það oftar en einu sinni ;) Svo nú megum við kúpla okkur inn í stelpugírinn, gott að hafa nægan tíma í að læra að flétta og svona!!
Báðar ljósmæðurnar (í dag og í gær) sögðu að þetta væri ansi kröftug stelpa, enda sparkaði hún í hlustunartækið í dag og sneri sér oftar en einu sinni undan sónartækinu í gær. Jáhh..svo við megum sennilega fara að hlaupa þegar hún fer á stjá!
Já við erum bara mjög happy..og Ísak er spenntur fyrir því að fá litla systur..sem betur fer ;)


7 Comments:
Oooo ég hlakka svo til og við Hugrún eigum fullt,fullt af stelpudót hihi kv.Heiða Björg
Jább, það verður sko gaman fyrir hana að skoða gamla dótið hennar Hugrúnar :):)
Hún mætir í heimsókn með Hello Kitty buffið frá ykkur híhí :)
Oh gaman að heyra! Þetta er svo spennó! Var ekki Ísak með það alveg á hreinu að þetta væri stelpa..? ;-)
knús frá Akureyri
Tinna
Tinnsla: Jú Ísak sagði strax að þetta væri stelpa. Svo var hann samt reyndar farinn að vonast eftir strák, litla greyjið. En hann var samt mjög sáttur við að þetta væri lítil systir og talar voða vel um hana alltaf ;)
OOO þetta er svo gaman. Fannst æðislegt þegar að þú sagðir mér þetta á miðvikudaginn :)
Það styttist í að við fáum að vita hvort okkar er. Við erum bæði búin að dreyma lítinn drág en svo segja svo margir að það komi stelpa :) Þetta er semsagt voða spennó :)
Kveðja að austan,
Jóka :)
Já þetta er æsispennandi, Jóka! Þú manst að láta mig vita :) Ég ætla að giska á....ömmm....stelpu hjá þér ;) Mig dreymdi líka strák nóttina fyrir sónar hehe ;)
Hæ Eygló, ég fylgist reglulega með en gleymi alltaf að kvitta fyrir mig, ætla samt að óska ykkur til lukku með sónarinn, spennandi að fá dömu í litlu sætu fjölskylduna :)
kv. Ester
Post a Comment
<< Home