Skólaleiði
Það er eiginlega fáránlegt, svona í ljósi þess hve lítið er eftir af skólanum, hversu mikið mig langar að hætta bara! Ég er komin með skólaleiða á háu stigi, nennirinn alveg orðinn 0% og frammistaðan eftir því. Sennilega er það samt eðlilegt að vera komin með upp í kok svona á síðustu metrunum, hef allavega heyrt nokkrar bekkjarsystur kvarta undan skólaleiða og áhugaleysi.
Þrír mánuðir eftir. Þrír langir og strembnir mánuðir. Svo er þetta búið vonandi.
Og ef ég tala einhvern tíma aftur um að fara í skóla, nennið þið þá að hrista mig rækilega!!


10 Comments:
Mikið er ég sammála þér.... maður er bara ekki að nenna þessu!! vantar duglegt spark í rassinn til að koma mér að verki, en reddast þetta ekki eins og alltaf :)
kv. Sigurlaug Björk
3 mánuðir verða fljótir að líða nú er bara að spíta í lófana og halda áfram, þú reddar þessu eins og alltaf :) kveðja Heiða Björg
Ohh sammála Sigurlaug, mann vantar stórt og gott spark í rassgatið !!
Heiða Björg: ég larfast þetta..það er ekkert annað í boði ;)
Hugsaðu bara um mig og hvað þú átt gott að eiga svona stutt eftir, ég á sko alveg heilan helling eftir og hef ekki einu sinni nógu marga putta til að telja hvað þetta eru margir mánuðir í heildina....dæææææææs.
Það verður alla vegana útskriftarveisla hjá þér, kannski getum við Ísak slegið saman í veislu þegar hann fermist og ég úskrifast. Muahahahaha.
Love you
Knús
Lísa
Ég held það sé alveg eðlilegt að fá skólaleiða, og ég er líka viss um að þú átt eftir að fara í skóla aftur !
En það er ekkert annað að gera en bíta á jaxlinn og bölva í hljóði, " mann skal alltaf reyna " Og Lísa mín jafnvel hin lengsta ferð hefst með einu skrefi, þannig er það nú bara kæru dætur.
ástarkveðja
mamma
Hahaha Lísa krútt! Ég ætla nú að spá því að þú verðir orðinn virtur viðskiptafræðingur áður en hann Ísak litli fermist ;) Og útskriftarveisla hjá mér..þú verður allavega örugglega ekki eins og þaninn loftbelgur í þinni! hehehe
Mamma: Já ég veit..en ég held samt að ég fari ekki aftur í skóla..ekki svona skóla allavega! Það verður þá eitthvað verklegt og spennandi!
ÆÆÆ...orðin leið?
Ekki varstu nú skólaleið á þínum fyrstu tveimur skólaárum, alltaf svo jákvæð og glöð! En síðan eru liðin 20 ár og skyldi engan undra þó fólki sé farið að leiðast!!!!
Knús og kveðjur...og til hamingju með bumbuna.
Skólaleiði er smáatirði þegar stórkostlegir atburðir eins og fjölskyldustækkun er framundan.
Það er lífið!
Gangi ykkur vel.
Sissa
Æ það er rétt, Sissa ;) Ég er á síðustu metrunum, best að reyna að bíta á jaxlinn og ljúka þessu af og svo tekur eitthvað skemmtilegra við ;)
Nei það var gaman þegar ég var lítil og við fengum popp heima hjá kennaranum og svona híhí ;)
Þú ert komin svo langt .. þú ferð ekki að gefast upp núna skvís! Ég hef fulla trú á þér :D Þú getur þetta ... ;)
Gangi þér vel ... með allt og allt
kv.. Ástan
Ohh takk Ástan mín. Sjáum til hvernig fer hehe
Post a Comment
<< Home