Spennandi ár
Ég verð að viðurkenna að það er svolítill léttir sem fylgir því að leysa svona frá skjóðunni.
Núna þarf fólk ekki lengur að velta því fyrir sér daginn út og inn hvort ég hafi misst mig í konfektinu yfir hátíðirnar eða hvort ég djammi allar nætur miðað við baugana sem hafa plagað mig.
Við erum búin að gera ýmsar ráðstafanir, ég var til dæmis búin að ráða mig í vinnu eftir útskrift en hef frestað því í bili, fer bara eftir orlof í staðinn. Einnig minnist Ísak oft á það að nú þurfum við að kaupa nýjan bíl til að geta komið tveimur bílstólum fyrir í aftursætinu, og það er alveg rétt hjá honum. Litla krúttlega blikkdollan okkar orkar sennilega ekki einn fjölskyldumeðlim í viðbót, hversu smár sem hann er. Hafið samt engar áhyggjur, þetta blogg mitt er ekki á leiðinni að fara að breytast í eitthvað meðgöngublogg ;)
Annars er allt gott að frétta héðan, skólinn að sigla af stað en nennirinn að vísu ekki kominn í gang, ég vona að hann hrökkvi af stað áður en út í óefni er komið, vinna við lokaverkefni og annað slíkt er framundan svo nú ríður á að maður standi sig. Spurning um að bretta því bara upp ermar og reyna að vera svolítið dugleg þessa önnina. Eitt er víst að þetta ár verður viðburðaríkt í meira lagi :) - það lofar allavega góðu.
Hafið það gott, dúfurnar mínar
Glóda


0 Comments:
Post a Comment
<< Home