Frjáls!
Já ég kláraði prófin í gær. Hvílíkur léttir! Að vísu finnst mér það svosem aldrei algjör léttir að klára próf því einkunnirnar eru jú ekki í höfn svo maður opnar Uglu með lemjandi hjartslætti á hverjum degi nánast. Ég vona bara að þetta fari vel og ég þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu. Í versta falli dúlla ég mér þá lengur við útskrift.
Annars hefur gengið glimrandi í skólanum til þessa en þessi önn er búin að vera svolítið erfið.
Nú má jólaandinn fara að koma yfir mig. Ég fór á smá flandur áðan með systur minni litla búbbanum og við náðum að redda nokkrum jólagjöfum og knúsa ömmu og afa..alltaf gott að fá að knúsa þessi krútt svolítið.
Planið í dag er svo að fara í bíó með strákunum mínum og við ætluðum líka að baka piparkökur en sé til hvort við náum því í dag.
Verst hvað ég á eftir að gera mikið fyrir jól. Það er ennþá prófadrasl og ryk hér eftir törnina. Spurning um að kalla þetta bara jóladrasl og jólaryk. Og svo þarf að redda jólagjöfum líka. Úbbasí. En þetta reddast. Þetta reddast alltaf.


5 Comments:
Elsku dúllan mín ég vissi það
ekki spurning þú kláraðir gott gott gott.
það var einusinni sagt við mig
jólasveininn sem kemur til mín lifir ekki inní skápum og ekki heldur upp
á hillum og ég trúi því
risa knús til ykkar allra
gamla í sveitinni
Takk fyrir knúsið Erla mín og stórt knús á móti :)
Auðvitað kláraðir þú þetta og njóttu nú lífsins og jólanna, held ekki að þú þurftir að hafa áhyggjur af útkomunni.kv.Heiða Bj.
Hehe Heiða við spyrjum að leikslokum:) þetta kemur víst allt í ljós, ég ætla að hugsa sem minnst um það núna allavega og einbeita mér að því að njóta þess að það eru að koma jól! :)
Jæja elskuleg! Til hamingju aftur! Þú kláraðir þetta auðvitað og einkunnirnar eru eitthvað til að hafa áhyggjur af eftir jól...þó ég hafi nú á tilfinningunni að það sé ekki mikil þörf á áhyggjum ;-) Allavega er núna bara tími til að njóta þess að skoða jólaljós, hlusta á jólalög og stússast með stubbi. Jólin koma líka á heimili með ryk í hornum...knús T
Post a Comment
<< Home