Army of me

Friday, December 07, 2007

Vinnugleði ? Hvar ?

Ég er búin að komast að því að vinnugleðin mín ferðast um á ryðguðum trabant. Hann er fastur í fyrsta gír og handbremsu og að auki er kúplingin orðin léleg eða að mestu ónýt.

Það er alveg spurning um að fara að sigla inn í tækniöldina og fjárfesta í gljáfægðum jeppa sem bankinn getur átt með mér.

En kannski er best að keyra bara gamla trabantinn áfram..hægt og rólega. Þetta hefst allt að lokum. Myndi samt muna miklu þó ég gæti bara losað um handbremsuna! Pope Edwards kallinn les sig nefnilega ekki sjálfur. Allavega ekki lengur. Held að hann sé dauður.

14 Comments:

At December 07, 2007 8:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Þetta er með illskiljanlegri færslum sem ég hef lesið á blogginu þínu!

Ég sé að námsefnið er farið að hafa talsverð áhrif á bloggskrifin þín þannig að hinn almenni lesandi (sem ekki kannast við verk Pope Edwards) verður ringlaður af lestrinum.

 
At December 07, 2007 12:44 PM, Blogger Eygló said...

Já svona fer lesturinn með mann. Allt í lagi að fá smá challenge við að lesa annarra manna bloggfærslur. Hver ert þú annars ?

 
At December 08, 2007 3:20 PM, Anonymous Anonymous said...

ég held ég sé sammála þessum naflausa lesanda þínum hahaha

finn til með þér að þurfa að lesa eitthvað eftir einhvern sem heitir pope edwards!!?! vona svo sannarlega að hann hafi eitthvað áhugavert að segja!

hlakka til að sjá þig einhverntíma...lovelove t

ps.áfram áfram áfram bílstjóri..!

 
At December 08, 2007 7:33 PM, Anonymous Anonymous said...

hehe - hvor sigraði hlaupið hérinn eða skjaldbakan? ;)
efast um að jeppinn komi þér neitt fyr á áfangastað ... held að ég nefnilega botni smávegis í þessar færlu þinni þrátt fyrir að þekkja ekki til Popes Edwards ;)

Gangi þér vel við lesturinn skvís

 
At December 09, 2007 8:42 AM, Blogger Eygló said...

Hey people.. takk fyrir kvittið :) en er það orðið að nýju trendi að kvitta ekki undir ? ;) Þið megið ekki valnda mér of miklum heilabrotum í prófatörninni sko!

 
At December 09, 2007 9:46 AM, Anonymous Anonymous said...

t=Tinna ;-)
knús
ps.veit ekki hverjir hinir eru...

 
At December 09, 2007 11:47 AM, Blogger Eygló said...

Já ég vissi alveg af þér, Tinnslan mín :* Og ég veit að upphafsmaður kvittsins er maðurinn sem ég er gift en þá er ein huldumanneskja eftir..hmmm

 
At December 10, 2007 1:26 AM, Anonymous Anonymous said...

Jæja fjórir dagar eftir þetta hefst allt saman þrátt fyrir ónýta Trabantinn, baráttukveðjur,Heiða Björg

 
At December 10, 2007 3:28 AM, Anonymous Anonymous said...

hehe - ertu ekki að kveikja á mér Eygló? ;) Viltu hint?

 
At December 10, 2007 6:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég held að ég sé allveg að skilja þetta líkindamál þitt sko. Alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar ekki verra að þurfa aðeins að pæla :),kv.Heiða Bj.

 
At December 10, 2007 1:19 PM, Blogger Eygló said...

Já takk, ég vil endilega fá hint! :)

 
At December 11, 2007 1:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Ásta;)

 
At December 11, 2007 4:02 PM, Blogger Eygló said...

Ahh sjúkkett, ég var orðin skíthrædd um að ég væri komin með stalker (afar kruteisan að vísu). Hæ Ásta mín, knús fyrir kvittið ;)

 
At December 12, 2007 11:52 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Trapant skvísa,
ég man það langt aftur að þeir sem óku Trapant komust á leiðarenda og þú líka í prófunum ekki spurning
þúsund knús og aðventukveðjur gamla í sveitinni.

 

Post a Comment

<< Home