Army of me

Thursday, November 22, 2007

Alheimsmet

Ég er búin að slá met í samlokuáti. Ekki bara persónulegt met, heldur alheimsmet. Túnfisksalatið, skinkan og osturinn bókstaflega lekur út um eyrun á mér og nasirnar líka. Ég stefni á súmóglímu í vor, það er alltaf svo gott að geta stefnt að einhverju. Rassinn verður sífellt mýkri og er það vel því stólarnir hér í skólanum eru svo fjári harðir og kaldir.

In other news langar mig að auglýsa eftir einfættum innbrotsþjófi. Nú er einn inni skór af drengnum gjörsamlega gufaður upp og sömuleiðis tveir inniskór af mér..af sitthvorri tegundinni. Ef einhver sér einfættan innbrotsþjóf hoppandi um í bleikum inniskó má sá hinn sami láta mig vita.

Gráðuga mæjonesétandi gyltan í ósamstæðu inniskónum kveður með stæl af hörðu stólunum í skítkalda skólanum.

4 Comments:

At November 26, 2007 3:06 PM, Anonymous Anonymous said...

"Gráðuga mæjonesétandi gyltan í ósamstæðu inniskónum kveður með stæl af hörðu stólunum í skítkalda skólanum" hahahaha. albesta sjálfslýsing sem ég hef lesið lengi!!!

Sendi þér mjúka og seiðandi strauma yfir hólinn.

 
At November 26, 2007 3:41 PM, Blogger Eygló said...

Haha takk Gunnsan mín :)

Sendi sms-ólgandi strauma right bact at ya ! ;)

 
At November 27, 2007 7:49 AM, Anonymous Anonymous said...

yummy elska líka samlokur..ef bara ég hefði tölu yfir það hvað ég er búin að vera að troða mig út af síðustu daga.
En ég hlakka lika til að fá að dóla mér eilítið með þér næstu daga þegar prófin eru búin (búhúhúhú hvað þau geta tekið á mann).
Knús og kossar
Lísa

p.s. hafa bleiku inniskórnir mínir nokkuð komið í ljós ? Nei ég spurði bara ....

 
At November 27, 2007 1:56 PM, Blogger Eygló said...

Nei tvífætti inniskóaþjófurinn nappaði þeim. Jább, það er nefnilega einn tvífættur á sveimi hér líka..

 

Post a Comment

<< Home