Army of me

Monday, October 08, 2007

Bubba byggir

Jæja.. ég fékk umbreytingaæði í dag og þar sem hvatvísin ætlar allt um koll að keyra þegar sá gállinn er á mér, vissi ég ekki fyrr en ég var komin í IKEA með soninn og tvær kátar frænkur í eftirdragi. Ætlunin var að kaupa nokkur húsgögn en ég endaði að vísu ,,bara" með tvö og fullt af smádóti þar sem pínulitli bíllinn bauð eiginlega ekki upp á meira. Kommóðan sem ég vildi endilega kaupa inn í barnaherbergið var níðþung. Heví þung. Þegar við litla frænka drösluðum henni niður úr hillunni fékk ég svona líka skemmtilegan slink á bakið. Svo nú er ég eins og farlama gamalmenni með bakverk dauðans og verk niður í mjaðmir. Sweet.

Kommóðan var sett saman..tók bara 4 sveitta klukkutíma. Hin bíður enn í kassanum og Anton fær að setja hana saman, þakka pent. Ég elska að versla í IKEA en hata hins vegar að setja saman það sem þaðan kemur!!!!!

Ég uppgötvaði mér til mikillar gremju, þegar ég var hálfnuð við að setja saman að þetta var vitlaust svo ég byrjaði upp á nýtt...og ftattaði þegar ég var komin á sama stað aftur að það var rétt í fyrra skiptið og skipti engu máli þó ég hefði snúið einhverju drasli- kom semsagt út á eitt. Æði.

En kommóðan er komin upp í barnaherberginu og sonurinn sæll og kátur. Eftir smá tiltekt verður líklega hægt að sjá í gólfið. Ákveðinn missir í því samt þar sem ég var komin ansi nálægt Íslandsmeistaratitli í hindrunarhlaupi.

Mánudagur..ég hata mánudaga. Fyrsti í sköfu. Nú er kominn vetur.

Ég sit í tíma, kannski spurning um að fara að hlusta- lágmark að gefa þessu séns, er það ekki ??

Gamalmennakveðjur
Eygló peygló

4 Comments:

At October 08, 2007 3:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir síðast alltaf gaman í Ikea,verst að bakið skildi fara illa. Ég er þegar orðin að gamalmenni ef það er mælt í bakeimslum svo ég kom ekki nálægt þessum burði.Hafði bara gaman af að fyljgast með ykkur frænkum.
Kveðja Heiða Björg

 
At October 08, 2007 3:58 AM, Blogger Eygló said...

hehe já það var öruggara Heiða Björg ;) en kommóðuskriflið er komið inn í herbergi og drengstaulinn hæstánægður :)

 
At October 09, 2007 9:00 AM, Anonymous Anonymous said...

Það er ekki laust við að ellin sé farin að sjást í orðavalinu á blogginu þínu. Kommóðuskrifli og drengstauli?! Þetta eru nú ekki orð við unga fólkið notum.


Kv.
Anton.

 
At October 09, 2007 10:41 AM, Blogger Eygló said...

Hahaha já svona leikur ellin mann grátt, húsbóndi sæll. Bíddu bara, eftir sex mánuði verður þú í þessum sporum, njóttu þess að vera ungur þangað til og baðaðu þig í slanguryrðum :)

 

Post a Comment

<< Home