Ég tek þetta í nefið
Ég sit í skólanum og þykist vera að læra með nokkrum vinkonum mínum og bekkjarsystrum. Við erum samt aðallega að háma í okkur sælgæti og hjakka í sömu línunum aftur og aftur. Það verður samt að taka viljann fyrir verkið og gefa okkur plús fyrir viðleitnina. Come on - við erum allavega að reyna!Frekar leiðinlegur dagur í gær og afleitt kvöld en ég nenni ekki að ræða það frekar. Í dag er nýr dagur og allt lítur betur út í dag. Ég tek þetta á hælinn, það er ekkert annað í boði !
Ég er hress og kát í góðra vina hópi. Ég spjara mig :)
Það er sól í dag og litla gullið hennar Maríu vinkonu sefur hér við gluggann hjá okkur. Hann er svo mikið yndi, get ekki einu sinni lýst því hversu fallegur og yndislegur hann er ! Hann starir á okkur með stóru bláu augunum sínum, brosir og hjalar, drekkur þegar hann er þyrstur og leggur sig þegar hann er þreyttur...ekkert flókið líf.
Ég væri stundum alveg til í að fá að vita hvað þessi litlu kríli eru að hugsa. Svo væri ég líka stundum alveg til í að vera lítil eins og hann Birnir Smári ,,minn" , það fer svo hrottalega vel um hann í kerrunni ;)En ég vil ekki skipta. Það er gaman að vera til :)
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn - pís át
Glóda


3 Comments:
Langt síðan ég hef farið hérna inn, en svona er lífið hólar og hæðir. Efast ekki um að þú "takir þetta í nefið" eins og þú segir. Gangi þér vel heyrumst síðar.Heiða Björg
Elsku stelpan mín...
Ég vildi að ég gæti sagt þér að lífið væri án þyrna, en þannig er það bara ekki því miður, en björtu hliðarnar eru miklu, miklu, fleiri en þær dökku. Alveg eins og þú segir sjálf. Ég dró fyrir þig kærleikskort, þar stendur " Markmið mitt er að öðlast innri frið " Göfugt markmið ekki satt. Love you, sætust.
mamma sín
Takk mamma mín.
Já ég veit, ég veit.. veit þetta allt.
Takk fyrir kærleikskortið
Post a Comment
<< Home