Army of me

Wednesday, September 19, 2007

Helgin var skemmtileg..og núna er að koma önnur helgi. Ég trúi því ekki hvað tíminn líður hratt!! Um síðustu helgi kom ,,gengið mitt" í skólanum til mín og við elduðum saman og spiluðum Party & co. langt fram á nótt og kíktum svo pínulítið í bæinn líka. Massa stuð og fjör bara :)

Í öðrum fréttum eru allar einkunnir úr sjúkraprófunum í höfn. Þrjár níur og svo ein ljót og skítug sexa. Nokkuð sátt bara.

Annars er bara ekki baun í bala að frétta af mér og ég er ekki í neinu bloggstuði what so ever..svo ég ætla bara að láta skemmtilegar samræður milli Ísaks og ömmu hans fljóta með hér í lokin.



Ísak: Amma, þegar ég verð 17 ára þá ætla ég að keyra bíl. Ég ætla að eiga brúnan bíl eins og afi Gunni og þá skal ég bjóða ykkur á rúntinn!

Amma: En ef þú verður kominn með kærustu ?

Ísak: Þá situr hún bara frammí hjá mér!

Amman: Jájá..og hvernig á kærastan þín að vera? Á hún að vera með brúnt hár eða ljóst hár eða... (amman farin að hafa gaman af þessu!)

Ísak: Hún á bara að vera eins og hún er

Amma: Áttu kærustu núna ? (haha amma þó!)

Ísak: Já

Amma: (forvitin) Nú hver er það ?

Ísak: Lísa (móðursystir) ;)




Góðar stundir og góða nótt
Glóda megaþreytta

6 Comments:

At September 20, 2007 3:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með einkunnirnar! Ekkert smá flott hjá þér - þú getur sko aldeilis verið stolt af þessum árangri. Hafðu það gott, kveðja Daldís.

 
At September 20, 2007 4:35 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju aftur! Dugnaðar forkur eins og við vitum. Alltaf gaman að heyra hvað stúfurinn er að pæla :) Kv.Heiða Björg

 
At September 20, 2007 6:00 AM, Blogger Eygló said...

Takk frænkur :)

 
At September 20, 2007 9:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég vissi það alltaf bara að kýla á prófin og ekket stress til hamingju og húrra fyrir þér
Risa knús frá gömlu í sveitinni

 
At September 20, 2007 10:00 AM, Blogger Eygló said...

Takk Erla mín :*

 
At September 21, 2007 9:39 AM, Anonymous Anonymous said...

SKO! Vissi að þú myndir rúlla þessu upp skvísa, hef fulla trú á þér ;)
Ísak alltaf spekingslegur og sætastur =)

 

Post a Comment

<< Home