Challenge í óbyggðum
Ég er búin að vera svolítið mikið í því í sumar að vinna í göllum mínum og finna sterku hliðarnar. Ein af mínum veikustu hliðum eru köngulær. Ég er bara ógurlega hrædd við þær og fæ hroll aftur í hæla ef ein slík nálgast mig. Í morgun þegar ég sat nývöknuð í ísköldu tjaldinu trítlaði stærðar könguló yfir sængina mína. Jább..yfir sængina mína. Hún tifaði á löngu mjóu fótunum sínum, full af sjálfsöryggi (ef köngulær eru með svoleiðis) og þóttist eiga tjaldið og allt sem í því var.Í stutta stund horfðist ég í augu við hana og hugleiddi hvað best væri að gera í stöðunni. Ég renndi augunum út úr tjaldinu þar sem karlmennirnir þrír, útilegufélagar mínir stóðu og ræddu saman og skírskotraði svo augunum yfir í tjaldvagninn þar sem Jóhanna, einnig með köngulóarfóbíu bjó sig á fætur. Það var ekkert annað að gera í stöðunni en að vera hetja. Kommon..ein könguló..reyndar risastór..þetta er auðvitað fáránlegt sko. Fyrst reyndi ég að henda henni út en hún var ansi þrjósk.
Baráttunni lauk því með því að köngulóin þurfti að lúta í lægra haldi fyrir snyrtibuddunni minni...og svo var henni hent út með hinu ruslinu.
Smá samviskubit út af köngulónni..en ég gat þetta! Vúhúú! Næsta skref er svo að díla við skítug almenningssalerni *æl*
Kveðja, Eygló köngulóardrápari


8 Comments:
Ekki gleyma lofthræðslunni, sem er á hröðu undanhaldi! Er ekki næsta skref að fara upp í Empire State bygginguna og skoða Nýju Jórvík úr rúmlega 380 metra hæð?
Kv.
Anton.
Hey jú ég gleymdi því! Ég hélt að útsýnisturninn í Liseberg hefði dekkað þennan þátt. Ég sem hélt ég hefði verið hetja þá.. (rúmlega helmingi styttri turn..shit).
Ég var samt að spá í að vera kannski bara frekar í H&M með Jóhönnu á meðan þið kallarnir skoðið útsýnið..kannski er H&M á mörgum hæðum.... :)
Knús:)
Dugleg að losna við spiderman! Talandi um lofthræðslu þá var ég ógurlega lofthrædd, fékk hálfgert panick attack ef ég fór mikið hærra en upp á stól en ég er orðin nokkuð góð núna með þrjóskunni og "ég skal", er ekki alveg laus við lofthræðsluna en á kollegie-unum sem ég bjó á fór ég alltaf frekar bratta brunastiga og á seinna kollegieinu var ég á 4.hæð og brunastiginn var stysta leiðin í þvottahúsið sem var við hliðina á húsinu, viðurkenni að til að byrja með þá var rassinn kominn niðrað hnjám þegar ég kom efst upp en þegar ég flutti þaðan var ég hætt að halda nokkuð í handriðið. Svo þetta er hægt. Áfram Eygló!!
Þú ert algjör hetja Eygló því köngulær eru eitt það ógeðslegasta sem ég get hugsað mér. Haltu áfram á þessari braut,kveðja Heiða Björg
Takk, Heiðdís og Heiða Björg :) I can do it! :)
Til hamingju með að sigrast á Köngulónni....ég er búin með þann sigur og finnst ég voða mikilmenni þegar vinkonur mínar kalla á hjálp mína í baráttunni við þær ;o)....sko H&M er á 3 hæðum en kannski læknar shoppið lofthræðsluna þannig að þú hefur þig upp á 3ju hæð og getur litið niður til að fá góða yfirsýn á varninginn....annars má eiginlega ekki sleppa Empire State, ansi flott útsýni. Byrjar á HM og skellir þér svo í turninn í verslunarvímunni hehe.
Knús og kiss
Lísa
Hehehe já Lísa það má gefa því séns ;)
Kóngulær eru ekki heldur í miklu uppáhaldi hjá mér!! Þar eigum við þá eitthvað sameiginlegt.
gaman að hitta þig, heillin, á Garó í gær. Alltaf sami strumpurinn! Verðum í bandi um hitting.
Kv.
Gunnur
Post a Comment
<< Home