Army of me

Monday, August 06, 2007

Helgin

..Var skemmtileg.

Á laugardaginn fórum við í brúðkaup Tinnu og Garðars og það var auðvitað rosa gaman. Anton spilaði í kirkjunni og stóð sig mjög vel og brúðhjónin geisluðu :) Farið var í óvissuferð út í Viðey þar sem við fengum allskonar góðgæti og ég lét mig hafa það að flytja ræðu þó ég væri reyndar alveg með hjartað í buxunum af stressi. En það kom ekkert annað til greina svona þegar maður hefur þekkt brúðina frá þriggja ára aldri!

Við komum svo heim um nóttina og rukum svo morguninn eftir í útilegu með Birki og Jóhönnu og Frikka og það var hörku fjör, þrír fiskar dregnir á land, hlustað á gömlu gufuna í tjaldvagninum hjá ,,gömlu", spilað og sullað í hvítvíni með grillmatnum. Í nótt var reyndar svo kalt að það ætti að vera bannað með lögum en við erum komin heim í heilu lagi:)

Vonandi áttuð þið eins góða helgi og við

0 Comments:

Post a Comment

<< Home