Army of me

Sunday, July 08, 2007

Hvatvísi ?



Í gærmorgun þegar ég vaknaði, ákvað ég að mála eldhúsið. Lakka eldhússinnréttinguna líka bara. Og skipta um höldur í leiðinni..og redda einum skáp sem er brotinn og leiðinlegur. Og skipta um eldhússljós líka.


Seinnipart gærdagsins var komin risastór málningarfata, málningarrúlla, tvær lakkdósir, krúttlegir penslar, málningarbakki og name it inn á gólf til okkar.



Þá ákvað ég að mig langaði líka að setja loksins upp gardínustöng í stofuna og hengja upp sætar hvítar gardínur yfir trérimlana. Nú bíður gardínustöngin eftir pabba gamla við hliðina á borvélinni inni í stofu. Ég nefnilega þori ekki alveg í boreríið þó ég ætli að ráðast í allt hitt ein..með aðstoð frá systur minni. Ég sagðist alveg geta þetta ein í bráðlætiskasti gærdagsins svo það er eins gott að ég standi við stóru orðin! Girl power, baby.


Það er ágætt að það er ekki svona rooosalega gott veður eins og hefur verið, því núna fær heimilið loksins athygli mína aftur. Vona bara að ég geri ekki illt verra.
Á morgun þykist ég semsagt ætla að tæma eldhúsið og þrífa það. Á þriðjudaginn mun ég svo troða mér í málningargallann, hækka græjurnar í botn og vonandi drekka kók og slúðra með systur minni í lakkvímunni.
Klúðra ég þessu nokkuð ?

3 Comments:

At July 09, 2007 2:13 AM, Anonymous Anonymous said...

Nei ég hef fulla trú á þér kona! :) Hlakka til að sjá nýja eldhúsið

 
At July 09, 2007 2:23 PM, Anonymous Anonymous said...

ji minn kona góð! þú ert alveg óð! (: hehe,Dóttir mín vildi að ég málaði sjó og alls konar fiska og skip á vegginn hjá sér jájá OKEY ekkert mál,og ég med det samme, mín útí búð og versla lit og ég byrjaði á að mála "sjó" í herbergið hjá henni. Svo var dagur að kvöldi kominn og 2 vikum seinna er ennþá bara hálfur veggur af sjó.... 'geeeeiiiiisssp' (): Svona er mín hvatvísi...luv....gullan þín

 
At July 10, 2007 4:19 AM, Blogger Eygló said...

Hahahaha þú ert svo fyndin! :D Ég er núna með fulla stofu af eldhússáhöldum og eldhús fyllt af skápahurðum og málningardósum og afslitnum hnúðum..sweet

 

Post a Comment

<< Home