Leti.is
Allt verður skemmtilegra í góðu veðri.
Við mæðginin erum bara tvö í kotinu á meðan kallinn er í vinnunni. Við höfum það ansi náðugt þó að samviskubitið hvísli því að mér að við ættum að vera úti að njóta veðurblíðunnar. Það er á stefnuskrá dagsins að reka nefið aðeins út og teyga að sér sumarloftið þrátt fyrir að húsmóðirin á bænum sé hnerrandi eins og brjálæðingur þessa stundina. Frjókornin eru alveg í essinu sínu mér til mikils ama.
Allir búnir að fjárfesta í bók ? Þ.e þeir sem það vilja ? Ég er búin að vera að senda í póstkröfu og svo fór ég með nokkrar á Borgarbókasafn í gær vegna eftirspurna. Eftirspurna? Hvað er málið með það? Hehe..amma og afi hafa örugglega farið í bókasafnið og spurt til að bústa upp egóið hjá barnabarninu sínu...
Ég hef annars ekkert merkilegt að segja í dag. Ég ætla bara að halda áfram að vera í letikasti með erfðaprinsinum í smá stund í viðbót. Ahh svo gott að vera latur stundum.


7 Comments:
hringtu i mig þarf tala við þig kv iris
Sætust ekki spurning.
gamla í sveitinni
Sæl Eygló mín og takk fyrir að kíkja á síðuna mína. Eins og þú hefur kannski tekið eftir er ég einmitt nýbúin að skrifa um ÞIG þar (færslan heitir Sunnlenska fréttablaðið). Gaman að sjá strákinn þinn og ef mér skjátlast ekki þekki ég mjög vel til föðurfjölskyldu hans :-)
Bið að heilsa.
Kv
Sissa
Hæhæ skvís! Er sko búin að lesa bókina þína vel (: Rosalega ertu skemmtilegur penni stelpa. (: Vissi það svossum fyrir en gaman að sjá það svona "live" hehe
Stattu þig stelpa og sjáumst seinna (: mundu eftir boði mínu á Krúsina....fer í sumarfrí á morgun (6. júlí..)
Kv, Gullan þín
Æ takk Gullan mín :) gaman að heyra. Já við verðum að láta verða af því að kíkja á Krúsina, ég er alveg geim í það og svo ætlar Sóley að koma líka :) Finnum tíma bara sem fyrst!!
Og Sissa, takk fyrir að kvitta á síðuna mína :) rosa gaman alltaf að ,,finna" fólk sem maður hefur ekki séð lengi! :)
hey ég vil bók...bjalla við þig á msn við tækifæri
minns er líka alltaf til í Krúsina ;)
Já Eva það er skylda að mæta á Krúsina! :)
Post a Comment
<< Home