Army of me

Sunday, June 03, 2007

Helgin

Það hefur verið í nógu að vasast um helgina.










Á föstudaginn komu New York farar í grill og Gettu betur og í gær var svo æskuvinkona mín, Tinna Lind að útskrifast sem leikkona. Hún tók skólann í nefið og brilleraði í prófunum eins og hennar er von og vísa. Svo dugleg:) Útskriftin var snilld, skemmtilegt partý í Iðnó þar sem við skókum rassa, Eva vinkona tróð karlmanni í kvenmannsjakka og afmælissöngurinn var sunginn fyrir Atla, bróður Tinnu.


Í dag var svo matarboð hjá fjölskyldu kallsins svo ég hef verið að éta alla helgina. María vinkona og nágrannakona kíkti líka í heimsókn með litla gullmolann sinn og við fengum að knúsa hann og klípa smá í hann. Algjör dúlla þetta barn!





Ég uppgötaði mér líka til ómældrar ánægju að ég get gert Hvítanessvipinn sem ættin hennar Evu vinkonu gerir gjarnan á mannamótum! Happy times...

Dömur fram í fingurgóma!


Vikan framundan lítur bara vel út, það er nóg að gera hjá mér þrátt fyrir vinnuleysið, til dæmis heimsóknir upp á göngudeild, aðrar heimsóknir sem ég hef lofað mér í, heimilisstörf, lærdómur og ýmis persónuleg erindi;)


Það er allt á réttri leið hjá mér, ég veit að sumum finnst kannski svolítið óþægilegt að hitta mig af því að þeim finnst þeir ekki vita hvað þeir eigi að segja eða segja ekki. Ég hef hins vegar ákveðið að vera ekkert feimin, ég nenni því ekki lengur. Svo ekki vera hrædd við mig ;)


Hafið það gott, dúfurnar mínar og farið vel með ykkur. Þakkið fyrir fólkið í kring um ykkur, traustir vinir gefa lífinu gildi

Knús og kossar á línuna



11 Comments:

At June 03, 2007 4:51 PM, Blogger Anna said...

Voðalega ertu fullorðinsleg á þessum myndum eitthvað ;-)

 
At June 03, 2007 5:29 PM, Blogger Eygló said...

Hehehe já einstaklega. Það er sennilega aðeins farið að slá í mann..

 
At June 03, 2007 5:35 PM, Anonymous Anonymous said...

Jííí hvað það hefur verið gaman hjá þér um helgina.
Gaman að sjá að þú situr ekki auðum höndum og um að gera að fagna lífinu.
Love you
Lísa

 
At June 04, 2007 1:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku dúllan mín mikið er gaman að lesa bloggið þitt og sjá hvað þú ert hress. hlakka til að sjá þig ef og þegar þú kemur í sveitina
þú veist hvar ég á heima Takk fyrir bókina þína ég er búin að lesa hana,hún er góð.
Erla

 
At June 04, 2007 4:30 AM, Anonymous Anonymous said...

Bara stanslaust fjör hjá þér um helgina, gaman að því. Góðar myndir af ykkur vinkonunum :)Ætlarðu að bæta mér á heimsóknarlistann langt síðan ég hef séð ykkur.
Kv.Heiða Björg

 
At June 04, 2007 5:39 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir síðast sætan mín, það var ekkert smá gaman hjá okkur!! Hlakka til að sjá allar myndirnar sem þú tókst...eða á ég að kvíða fyrir hehehe
knús
Tinna

 
At June 04, 2007 9:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ elsku Eygló mín ;) sé að það hefur verið stanslaust stuð hjá þér um helgina ... hefur ekki ákveðið að taka nokkrar ,,ljótumyndir" eins og við erum bestar í ??? hehhehe
kannski getur enginn verið eins myndarlegur á myndum og við ! hver veit hver veit. en við verðum svo að fara að hittst allavegana heyrast gengur ekki lengur mín kæra
kv. Nína

 
At June 04, 2007 11:05 AM, Blogger Eygló said...

Takk fyrir öll kommentin! :) Frábært að fá komment!!

Hehehe Nína jú við tókum svona einhverjar semi-ljótumyndir en það kemst enginn með tærnar þar sem við höfum hælana þegar að ljótumyndunum kemur! Við verðum að fara að hittast og taka nokkrar hræðilegar myndir af okkar íðilfögru andlitum!

 
At June 04, 2007 12:57 PM, Anonymous Anonymous said...

segðu segðu það er sko kominn tími á það ;) verðum í bandi bráðlega. ég er voðalega lítið að gera á kvöldin, bara að vinna til 16/17 á daginn !
verðum í bandi mín kæra ;)

 
At June 04, 2007 5:43 PM, Blogger Eygló said...

Eeeeendilega Nína! :)

 
At June 07, 2007 12:37 AM, Blogger Hrafnhildur said...

Takk fyrir síðast Eygló!! Það var ægilega gaman að hitta þig, þú ert svo sæt og fín og skemmtileg og algjör töffari úti á lífinu fram á morgun...
njóttu sumarsins
Hrafnhildur

 

Post a Comment

<< Home