Mánudagur
Ég var að syngja í þremur fermingarmessum í gær. Hálf raddlaus og í vitlausri rödd miðað við bassaröddina mína. Svo hékk ég líka afar tignarlega í handriðinu í tveimur messum þar sem ég var orðin óþægilega völt vegna gífurlega mikils hita innandyra. Ég var ekkert ein um þessa yfirliðatilfinningu í kórnum, væri til í að heyra hvernig hann hljómaði! Það fór samt betur með mig heldur en vesalings fermingardrenginn sem steinlá á gólfinu. Eftirminnilegur fermingardagur..
Ekta mánudagur í dag. Ég er alveg rotin að inna sem utan. Þykist vera að læra en kem engu í verk. Þetta er vandræðaástand bara!!! Mig vantar vænt spark í rassinn. Helst ekki samt frá einhverjum í támjóum skóm, ég verð nefnilega að geta setið á rassinum. Erfitt að vera löt og geta ekki setið því þá fer ég að liggja..og þá fyrst er voðinn vís.
Eigið góðan dag
Eygló letistrumpur


9 Comments:
Hehe, þér gekk nú alveg ágætlega að syngja og hékkst uppi allan tímann. Meira en segja mátti um aumingja fermingarbarnið...
En ég get verið þér sammála um að þetta var aðeins of mikið af messum á einum degi!
Úff hefði verið sjón að sjá kórinn hríðfalla eins og dóminoborg...*fliss* sorry kannski ekki fyndið.
En skil þig með letiganginn svona á mánudegi...finnst ég enn vera að komast í gang.
Kv
Lísa
Syngjandi letistrumpur...ekki slæm blanda. Talandi um strump og göbb... mannstu þegar ég ætlaði að gera at í þér með sms-um??!! Sem betur fer eru mööörg ár síðan.... ég læt auðveldlega gabbast en er lélegur gabbari sjálf.
Svona eru mánudagar en þetta er stutt vika huggum okkur við það.
Kv.Heiða Björg
Hahahahahaha Gunnur!! Já hvort ég man! Það var bara eitt það fyndnasta sem ég hef lent í..hahaha...hrikalega lélegur gabbari! Verst að þú skyldir týna honum Símoni ;)
Ég verð nú að fá að heyra þetta sms-gabb ? svo lengi sem það sé ekki leyndarmál :p hehe
kv
Lísa
Gunnur þóttist vera sérlega heitur og leyndur aðdáandi minn og sendi mér afar Gunnar-legt tælandi sms. Hún flaskaði hins vegar á því að númerið hennar fylgdi með svo ég hringdi í 118 og sendi henni Gunni minni svo slepjulegt sms á móti:) hehe lúði!
Muahahahaha, tæknileg mistök..en fyndið samt. Kannski eins og þú fékkst einn 60 á bakið eftir að halda að þú hefðir verið að senda mér sms, en varst alltaf að senda á hann hehehehehe.
Knús
Lísa
Já, Eygló, synd með hann Símon!! En sko mér til varnar þá var nýlega komið á markað að geta sent sms úr tölvum sko... og ég kunni ekki alveg á þetta. Fór alltaf inn á mitt svæði hjá símanum.
Post a Comment
<< Home