Minning

Þessa færslu langar mig að tileinka henni Ingibjörgu, gömlu vinkonu minni að austan. Hún hefur loksins fengið friðinn og líður vonandi voða vel núna.
Þetta er bara gangur lífsins og allt það, en mér finnst samt alltaf leitt þegar gömlu vinir mínir á hjúkrunarheimilinu falla frá.
Ég hef ekki hitt Ingibjörgu mína síðan um jólin. Knúsaði hana á aðfangadag og er allavega fegin að ég fór í heimsókn þá.
Jæja..ég ætla að hætta þessari væmni ;)


2 Comments:
Já elskan mín það er alltaf leiðinlegt þegar einhver sem manni þykir vænt um fellur frá.
En eins og þú segir, gott að þú fékkst tækifæri til að knúsa hana um jólin.
Knús
Lísa
Innilegar samúðarkveðjur til þín, alltaf vont að missa vini sína en mjög líklega líður henni betur núna.
Post a Comment
<< Home