Ég er nörd frá náttúrunnar hendi
Tvö verkefni nokkurn veginn í höfn af silljóntrilljónbilljón.. *anda inn*anda út*
Held ég verði að fara að drekka kaffi í lítratali. Og kannski taka koffíntöflur með svona til að þetta verði alveg örugglega orkubúst. Hljómar það ekki svolítið árangursríkt ?
Ég hélt það væri að koma vor. Svo fór að snjóa. Hvað á þetta að þýða ? Maður er bara nánast kominn út í dyr í bermúdabuxunum með kríthvíta fótleggina eins og eyrnapinna undan víðum skálmunum þegar veturinn skellur á aftur. Þetta er bara dónaskapur og ekkert annað. Annars finnst mér snjórinn ágætur, það er allt svo bjart og hreint þegar það er snjór yfir öllu.
Ég held að ég sé nörd algerlega frá náttúrunnar hendi. Og svo hef ég aukið á nördaskapinn með hátterni mínu og líferni. Alveg hreint sláandi uppgötvun.
Ég komst að því að ég sé ekki hálfa sjón og þarf að ganga með gleraugu. Gleraugu eru í sjálfu sér í góðu lagi en þau eru ekki það besta sem geta hent mann útlitslega séð þegar maður er með rautt úfið hár, freknur og skakkar tennur svona í grunninn. Þetta verður mögnuð útkoma. Það verður samt að vera allavega eitt nörd í hverjum bekk, held að það sé bara náttúrulögmál. Ég tek þessu hlutverki mínu bara eins og sannri konu sæmir og skýli mér á bak við það eftirleiðis að ég sé hvort eð er nörd. Það er mitt hlutverk og ég ætla að sinna því vel eins og hverri annarri skyldu. Núna má ég semsagt hrynja niður tröppur, teygja liðband á balli og mismæla mig allsvakalega án þess að það teljist nokkuð óeðlilegt.
Ég held að þetta blogg heiti hárréttu nafni. Þetta var svo sannarlega þankahríð andlausrar konu á þessum annars ágæta laugardegi.
Nördið kveður í bili með úber nördalegri skátakveðju og snýtir sér í ermina
Eigið góða helgi, elskurnar mínar stórar og smáar...


2 Comments:
Hehe, ég sé alveg fyrir mér kríthvíta fótleggi eins og eyrnapinna í bermúdabuxum í snjónum...
Nörd eða ekki nörd, hvað væri lífið án þín?
Þú ert ekki með freknur elskan,hvað með fólkið sem er eins og landakort af frekknum, maður heldur stundum að það sé búið að merkja alla alþjóðlega flugvelli á það með punktum.
p.s. þú ert EKKI nörd. Bara skemmtileg.
Muna svo að raka áður en eyrnapinnarnir líta dagsins ljós. heheh
Lísa
Post a Comment
<< Home