Jæja.
Ég var víst búin að lofa að lita á mér hárið eða flytja úr landi ef að rauðhærða gerpið myndi vinna.
Hvort á ég að gera???
Ohh..skil ekki hvað er í gangi...gamall kall með dautt hár í leðurbuxum
En ówell. Ég ræð víst ekki við þetta!
Annars bara fínt að frétta, rosa gaman í skólanum í dag. Það var opið hús og alli máttu koma og kíkja á okkur á sprell námskeiðinu okkar;) Alls konar skemmtilegir leikir sem við fórum í, voða gaman.


6 Comments:
Mátt alveg flytja til mín ef þú vilt, gætir líka prófað að lita hárið á þér bleikt;) Þetta var nú frekar glatað númer, ég vildi senda Friðrik Ómar. Kv Heiðdís
Svona svona....en hann kann nú að syngja kallinn og lagið er bara alveg ágætt. Er líka ekki bara spurning um að vera með ekki að vinna ;o)
Það er svo skemmtilegt hvað þú tekur þetta nærri þér. Æi litaðu bara frekar á þér hárið....vil ekki fara að sakna þín alveg strax. En geturðu ekki bara borðað hatt í staðinn.
"ég fææææææææææ aldrei nóóóg....lalallalala"
p.s. gleymdi að segja að það var ég sem skrifaði hérna fyrir ofan hehehe ein alveg úti að aka í dag...er svo upptekin af að læra textann við nýja eurovision lagið hehehe, og nú ætla ég að taka allt líf úr mínu hári og lita það rautt. Fá mér svo þröngar leðurbuxur og verða fan no. 1
muahahhahahaha
Lísa
Hehehe jú ég ætla að éta hatt...og skó..
Nei ég svosem tek þetta ekkert nærri mér, bara fíla ekki þetta tímaskakka lukkutröll :p
Muahahahhaha en kannski verður þá þetta lukkutröll okkur til happs í þetta sinn. Eins og hann segir sjálfur þá er allt þegar þrennt er...þetta er jú hans þriðja ferð í keppnina.
Over and out
Lísa
Bíddu hvað hefurðu á móti rauðhærðu fólki? :) Eiríkur Hauks er bara flottastur og geggjað lag!! :)
Post a Comment
<< Home