Sumir dagar...
Mér finnst svona subbuslabbveður ekkert sérstaklega skemmtilegt. Ekki nema þegar ég fer út með það eitt í huga að verða blaut og skítug uppfyrir höfuð. Það gefur auga leið að upptekin kona eins og ég fær nú ekki oft slík tækifæri. Þess vegna varð ég smá pirruð þegar gaur með lítið typpi á stórum jeppa keyrði á fullum hraða ofan í slabbdrullupoll þar sem ég gekk í sakleysi mínu. Það bætti ekki skapið að fá þessa blautu snjó-sand-bensíngusu yfir mig. Vona að jeppakallinn sé með hiksta núna.
Hvað er hægt að gera til að halda deildarstjórum í starfi á leikskóla ? Helst lengur en mánuð í senn...
Já.. ég er ferlega öfugsnúin og pirruð í dag..ég ætla að skella skuldinni á eitthvað allt annað en sjáfa mig ;)


3 Comments:
Glataðir þessir typpakallar *arg* toga aðeins í "hann" svo þeir fái sér minni bíl og nái ekki uppúr þessum pollum !!
HEHE
hemm mín kæra, ég veit að ég er löt að skrifa...but what about you now darling. Koddu nú með spennandi og krassandi sögu handa okkur. Það er aldrei lognmolla hjá þér.
Knús
Lísa
Já þessir typpagaurar....það er versta er að ekki nóg með að hann sé lítill á þeim, heldur hafa þeir ekki séð hann heldur svo árum skiptir vegna bumbunnar sem þeir eru með líka.
Annars man ég einu sinni í menntó gerðist þetta hjá bekkjarsystur minni, gæji að keyra fyrir Kók. Hann varð svo miður sín að sletta á hana að hann keyrði hana í skólann og gaf henni kippu af kók....gvöð en rómó.
Það á að banna strákum sem ná ekki upp á styrið að kaupa sér jeppa og hananú.
Lísa
Post a Comment
<< Home