The thong woman..

Ég sá konu í svona átfitti í ræktinni í gær. Hún var reyndar meira kúl, með ennisband og allan pakkann. Og ,,nokkrum" kílóum þyngri en þessar stöllur.
Ég held að hún hafi bjargað deginum hjá mörgum..það var mjög fyndið að horfa yfir tækjasalinn þegar allir sneru sig úr hálsliðnum til að sjá aðeins betur.
Ég hálf saknaði hennar í morgun þegar ég mætti og sá enga konu í þveng í tækjunum..hahaha.
Annars bara gott að frétta, skólinn byrjar á mánudaginn og svona..allt að skella á barasta. Ég er búin að útrétta og sprikla og versla og nú er bara komið að því að taka svolítið til, svei mér þá!


4 Comments:
Hehehe já þetta var yndisleg sjón...eins og að upplifa árið 1980 :p
hehe ég sá eina konu í ræktinni í gær sem var reyndar alveg í venjulegum fötum held ég en hárið á henni var túberað svo mikið að það var eins og heysáta á hausnum á henni og þar að auki hafði það ekki hreyfst neitt þó hún væri á leikfimi og svo ofan á allt var hún með hrillilega bleikan varalit!! Fyndið svona fólk
Hva fannst þér eitthvað að otufittinu mínu??????? Ég sem ætlaði að gefa þér svona í afmælisgjöf!
Thíhí .... yndisleg þegar fólk er svona veruleikafyrrt
Já og þessi kona var sko svo innilega að dilla sér fyrir framan kallana í lóðunum..eins og hún væri að bíða eftir því að einhver kæmi og byði henni á rúntinn með sér. Sad.
Post a Comment
<< Home