Army of me

Tuesday, December 26, 2006

Jólablogg

Svei mér þá, ég held að það sé komið að þeim tímapunkti þegar konfekt og kjöt fer að vætla út úr eyrunum á mér. Við fengum ógrynnin öll af konfekti í jólagjöf svo það er ansi handhægt að kíkja í kassana svona þegar maður er að hafa sig til í háttinn á kvöldin. Svona á milli mála, þið skiljið.

Mér verður samt alveg illt af tilhugsuninni um það að ég sé hér, umkringd jólaljósum og svo útbelgd af ofáti að ég lít út fyrir að vera komin nokkra mánuði á leið, á sama tíma og fólk sveltur úti í heimi.

Til hamingju með jólin, dúfurnar mínar og þakkið fyrir það sem þið eigið ;)

1 Comments:

At December 27, 2006 9:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól Eygló mín og ég er sammála þér, næstu jól fá allir frá mér búfénað í Malaví í jólagjöf. Það er örugglega gjöf sem gleður....allavega svöngu börnin. Já, konfekt, úff mig langar að æla. Er að pæla í að fara í hungurverkfall eftir áramót í mótmælaskyni við.....æi bara eitthvað. Mér er alveg sama hverju ég mótmæli, vil bara ekki borða svona mikið......

 

Post a Comment

<< Home