Ævintýri Eyglóar..never ending story
Systir mín benti mér vinsamlega á það að það væri víst alveg kominn tími á nýja bloggfærslu. Þetta náttúrulega nær engri átt en mér til varnar verð ég nú að segja það að síðan er búin að vera að stríða mér og hefur ekki viljað leyfa mér að blogga um nokkra hríð.
Hér er samt allt við sama heygarðshornið.
Þið sem þekkið mig vitið nú samt að það er sjaldan lognmolla í kring um mig. Og ekki á þann hátt að ég sé svona svakalega mikill stuðbolti eða partýljón. Þetta er allt náttúrulegt..svona náttúrulegur nördaháttur og helber klaufaskapur. Um daginn þegar óveðrið mikla var, brá ég mér á bæ og hafði það náðugt við nammiát og kjaftagang hjá vinkonu. Þegar heim var komið (eftir að hafa keyrt neðansjávar alla leiðina) uppgötvaði ég mér til skelfingar að það var þvottur á snúrinni. Já ég undirstrika var.
Svo Eygló hin síkáta þurfti að dressa sig upp og skella sér niður alla stigana og út í garð að tína upp föt..ég fer aldrei í berjamó svo þetta var bara gaman. Eftir að hafa barist með vindinn í fangið og orðið gjörsamlega niðurringd kom ég aftur inn með bros á vör. Hundleiðinlegt að enginn hafi séð þetta því þetta var ferlega fyndið.. og ekkert smá nördalegt að hlæja ein úti í hífandi roki og rigningu. Bara heppin að vera ekki lokuð inni.
Í dag var mér falið það mikilvæga verkefni að sendast með pakka úr vinnunni. Það vildi þó ekki betur til en svo að miðinn glutraðist á leiðinni út í bíl. Ég taldi mig þó nokkuð góða þar sem ég mundi götuheitið og fyrra nafn viðtakanda og hélt að ég hefði jafnvel húsnúmerið á hreinu líka svo mér var ekkert að vanbúnaði.
Eygló hringir galvösk bjöllunni á húsi einu í Reykjavík og til dyra kemur stærðar hundur með gamla konu í eftirdragi. Konan kannaðist ekki við pakkann svo ég spyr eftir viðkomandi nafni og þá vill svo til að dóttir konunnar býr í sama húsi og ber sama nafn. Þá var ég farin að átta mig á því að ég væri sennilega ekki í réttu húsi svo ég reyni að malda í móinn en hrópin í rosknu konunni yfirgnæfa mig. Eftir töluvert hróp frá þeirri gömlu og mald í móinn frá mér kemur andlega fötluð kona sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Enn reyni ég að afsaka mig og er byrjuð að bakka niður tröppurnar með pakkann í fanginu.
Mægðurnar kíta þar sem dóttirin ku vera eyðslusöm að mati móðurinnar. Ég styn því upp í hundraðasta sinn að ég sé í röngu húsi og flýti mér út í bíl. Pakkinn komst að lokum til skila eftir nokkrar símhringingar og leit að miðanum sem fannst úttraðkaður á fjölfarinni götu. Allt er gott sem endar vel..er það ekki ?
Hvernig lendir maður í svona ævintýrum aftur og aftur ? Jahérna.


2 Comments:
Hahahaha, þú átt engan þinn líkan!
Tilvera þín lífgar upp á annars gráa daga hjá mörgum held ég...
haha hvar væri heimrinn án þín...
Post a Comment
<< Home