Army of me

Saturday, September 02, 2006

Friskó og skordýramál

Halló allir

Já það er nú svona eitthvað búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Til dæmis er ég búin að skreppa til San Francisco!! Ég fékk svaka tilboð frá flugfreyjunni systur minni sem hljóðaði upp á 10 þúsund kall fyrir flugið. Foreldrar mínir bættu svo um betur og gáfu mér þennan 10 þúsund kall og svo var hótelið frítt þar sem ég var á herbergi með systur minni. Ég var eins og prinsessa, fór á fyrsta farrými fram og til baka og það var svoleiðis stjanað við mig. Vissuð þið að fólkið á fyrsta farrými fær matseðil???? Ótrúlega skondið! Og svo maður minnist ekki á Lazyboysætið, DVD-spilarann,drykkina og allt... :)

Friskó var æði, við kíktum í búðir og slöppuðum af og höfðum rosa gaman bara! Þetta var nú bara 2ja nátta stopp en gaman þrátt fyrir það :D. Ég ætla sko að fara aftur seinna, það er bókað mál.

Ég náttúrulega lærði ekki rass úti og er með smá magapínu yfir því...obbosí. Ég hins vegar fór í dag út í móa með Maríu bekkjarsystur og hinum afar áhugasama syni mínum, honum Ísak. Við týndum arfa og söfnuðum sniglum. Ég ákvað að fá mér snigla í verkefnið þar sem þeir eru svo hægfara og mér finnst stafa minni ógn af þeim en t.d köngulóm (stafar náttúrulega ekkert sérlega mikil ógn af íslenskum köngulóm en..þær eru samt ógeð!). En tja...þrátt fyrir að ég hafi valið hægfara dýr, tókst einum að STINGA AF inni hjá mér!!! Það eina sem hann skildi eftir var væn slímrönd á sófaborðinu mínu!!

Anton er svo með vini sína í grillpartýi núna..kannski það verði grillaður snigill á boðstólum ?

3 Comments:

At September 04, 2006 2:18 AM, Blogger Linda said...

haha, grillaðir sniglar eru víst mikið lostæti ;)

 
At September 04, 2006 11:32 AM, Blogger Eygló said...

Hhehehe já svo er víst :)

 
At September 08, 2006 7:58 AM, Anonymous Anonymous said...

hahahha mér var einmitt hugsað til eins grillaðs þegar ég las þetta, kanski vorum við bara upprennandi gúrmekokkar og klikkuðum bara á hvítlauknum...

 

Post a Comment

<< Home