Í Ríkissjónvarpinu eru sænskar konur að umla og smjatta á tei og tala annað slagið sænskuskotna ensku við gamlan kínamann. Að maður skuli borga fyrir þetta! Á Skjá einum getur maður svo rekið nefið á bólakaf ofan í koppinn hjá bláókunnugu fólki, séð það undirbúa og markaðssetja brúðkaupsdaginn sinn. Það er ekki furða að maður sé nánast hættur að glápa á imbann!!
Jæja nú eru 3 dagar eftir af fríinu og 2 dagar í afmælið mitt. Hmm svosem ekkert spennandi á döfinni þrátt fyrir það..bara liggja með tærnar upp í loft og kannski bora í nefið líka.


8 Comments:
Þetta er nú ekkert. Ef þú værir með sýn, hefðirðu getað horft á Jón Pál lyfta hveitipokum !!
Spennandi !!
Ohh dem..sárt að missa af því, ha !
Já sjónvarpsdagskráin er oftansi spes!
Til hamingju með daginn skvísa :P
Til hamingju með afmælið, gamla mín;) knús frá Dk Heiðdís gamla.
Takk takk :)
Hjartanlega til hamingju með daginn væna krús :) Hafðu það sem allra best *kossar og knús*
María nágranni :)
-sem er að lesa fyrir próf :S
Til hamingju með afmælið Eygló!
fyrirgefðu að þetta kom degi of seint, ég stend mig greinilega ekki í stykkinu! ;)
Njóttu lífsins sem þú best getur!
Kær kveðja Sigrún Heiða
æ takk fyrir stelpur :)
Post a Comment
<< Home