Army of me

Tuesday, June 13, 2006

Ekki var geitungadraumurinn fyrir illu þar sem ég fékk bara fínar einkunnir þrátt fyrir allt. Ég gæti þá náttúrulega túlkað drauminn sem ranghverfan draum svona til að halda fast í þá fullyrðingu að ég sé einstaklega berdreymin.

En berdreymin eða ekki, það er allavega komið sumar með vor í lofti. Ég ligg þó heima með einhverja skítaflensu að því tilefni af því að ég nennti ekki að taka nema eina svona pest í vetur..góður tími sem ég valdi mér. Stubburinn átti afmæli í gær og mamma hans lá bara eins og aumingi uppi í sófa eða rúmi til skiptis..einstaklega skemmtileg. Það varð honum þó til happs að hann fór á leikskólann og svo á hann þennan líka fína pabba sem gat sinnt honum ;)

Verst fannst mér þó líka að beila á afmælispartý hjá Nínu, stuðbolta bekkjarins! Þetta er þá í annað skipti á þessu ári sem ég beila svona feitt á hana..úff..mér verður örugglega aldrei fyrirgefið ! Ég sat á bráðamóttökunni allt laugardagskvöldið með tannsýkingu á meðan aðrir hristu á sér botninn í glaumi og gleði (og reyndar komu nokkrir tognaðir/brotnir í partýgallanum meðan ég beið..hehe)og labbaði svo út í nóttina með pensilín og verkjalyf í poka.

Jbbíjei..sennilega skemmtilegasta laugardagskvöld í langan tíma. Svo reyndar þegar ég fór að fá hita og allt hitt þá náttúrulega var toppnum alveg náð ;) Gerist ekki betra..hnussssss.

In other news..þá erum við Anton nýkomin frá London. Það var bara SNILLD og mig langar aftur út. Það var æðislegt veður, yfir 20 stiga hiti allan tímann og það var yndislegt að geta sest niður hér og þar til að fá sér ís eða bjór eða borgara og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu. Við fórum á 5 söfn að ósk Tona kallsins og þau voru mis-spennandi en samt bara gaman ;) Svo kíktum við í búðir og versluðum slatta á barnið að sjálfsögðu..ég verðslaði þó nánast ekkert á mig, geri það bara næst, þegar pundið verður orðið skaplegra!

Æ ég nenni ekki að blogga meira í bili, næ ekki andanum fyrir hori og ógeði.

Túrílú

2 Comments:

At June 15, 2006 2:01 PM, Anonymous Anonymous said...

til hamingju með afmælið ísak, og mamma hans láttu þér batna!
knús
heiðdís

 
At June 16, 2006 5:25 PM, Blogger Eygló said...

Takk Heiðdís mín :)

 

Post a Comment

<< Home