Gleðilegan laugardag!
Eftir að hafa náð í fárveikt barn í dauðans ofboði á leikskólann í gær, fór ég með það stálhraust heim. Ekki í fyrsta skipti sem ég er látið sækja veikt barn sem er ekki veikt. Hnuss. Fárveika barnið er núna á Selfossi í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa þar sem það reytir arfa í garðinum og borðar grillkjöt :)
Ég þurfti svo mikið að læra í dag og fara í ræktina. Passaði í staðinn í smá stund ótrúlega fallegan lítinn gullmola, hann Birki Mána brosmilda. Eftir það þreif ég íbúðina og lagaði til líka..gerði semsagt eiginlega allt annað en að læra. Úff..alveg rugluð. Núna sit ég sveitt yfir leiðinlegasta verkefni sem sögur fara af og á von á nokkrum bekkjarsystrum á eftir.. það verður stuð :) Við ætlum að hafa það kósý og éta nammi og svona. Á morgun verð ég samt að vakna snemma, skvapið mitt á stefnumót við Ágústu Johnson !! Og svo er víst best að ljúka þessu verkefni af áður en við sækjum gullmolann okkar í "sveitina"


4 Comments:
segi bara Baráttukveðjur Eygló mín!!! ;)
Já, tek undir með Ínu - gó Gleygló, gó Gleygló.
Svo hef ég svo lítið séð þig. Er barast að hvernig þú lítur út, gullgrísinn minn.
kv
Gunnur
já það eru nú skýringar á því, strumpurinn minn eini og sanni :) ég er enn í vettvangsnámi, en því fer að ljúka svo kannski ég mæti þér brátt á göngum skólans svona í prófatímanum;)Annars er ég orðin vel hnöttótt, veit ekki hvort það er leikskólafæðið eða bara aldurinn sem gerir þetta af verkum..ef heldur fram sem horfir má Barbapaba sko fara að vara sig!!
Þú veist að Barbapabbi og fjölskylda eru kenningar H.Garners í hnotskurn hehehe....barbabrella!!
Post a Comment
<< Home