Army of me

Thursday, February 16, 2006

þá er heilsuræktin hafin.. :)

Jæja...ég drullaðist í fyrsta tímann minn í ræktinni í morgun. Var mætt út í bílinn hennar Maríu bekkjarsystur klukkan rétt rúmlega 6 í skítakulda og hávaðaroki. Við fórum í hjólaþrek og héldum út allan tímann.. ég hélt samt á tímabili að ég væri að deyja..eða svo gott sem. Svo þarf ég að fara aftur í dag og ganga frá samningi/kortamálum eða eitthvað svoleiðis.

Ég ætlaði að fara að læra...hmm..kominn tími til. Verst að ég er bara svo syfjuð eitthvað..
Svo er skóli eftir hádegi og saltkjöt og baunir hjá ömmu og afa í kvöld (þau verða nefnilega úti á Kanaí á sprengidaginn). Mamma og pabbi eru úti á Kanarí núna..vá hvað ég væri til í að vera þar líka..er með þeim í anda!

Æ ég skrifa meira síðar :)

Kv. Eygló

3 Comments:

At February 17, 2006 11:31 AM, Anonymous Anonymous said...

Frekar erfitt að vakna í þessu leiðindaveðri :S Við erum ekkert smá duglegar sko *brosallanhringinn* Hlakka til að fara í líkamsræktartíma á laugardaginn með þér ;)

 
At February 18, 2006 5:53 AM, Blogger Eygló said...

Já við erum sko hetjur;) og ég er enn á lífi eftir tímann í dag þrátt fyrir stigvaxandi harðsperrur!!

 
At February 24, 2006 12:51 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá ég dáist að því hvað þið eruð duglegar:) Ég er alltaf að reyna að fara í ræktina á morgnana en það bara eerrr svo gott að sofa. zzzzzzzz

 

Post a Comment

<< Home