Army of me

Friday, February 03, 2006

Geyyyysp

Halló allir!

Í gær fór ég í saumaklúbb, borðaði yfir mig af gúrkum og gulrótum og vakti allt of lengi. Fór seint að sofa og vaknaði snemma og mætti beint í málstofu. Ég var sko hundþreytt þegar ég vaknaði og það er að hluta til nágrönnum mínum að þakka. Við nefnilega erum með ruslageymsluna í 3 mánuði (búin með einn..tveir eftir!) og það er ekkert smáræði. Í gærkvöldi þurfti ég að skipta um tunnu og endaði öll löðrandi í gamalli undanrennu,kóki og einhverju sem ég kæri mig ekki um að vita hvað var því einhverjir kunna ekki að loka ruslapokunum sínum!! Það versta var samt að einhver framtakssamur nágranni ákvað að losa sig við risastóra, dauða jóatréð sitt úr stofunni og fleygja því inn í ruslageymslu jafnvel þó febrúarmánuður sé bara rétt að ganga í garð. Ég þurfti semsagt að henda bannsettu trénu út úr okkar pínulitlu ruslageymslu til að geta víxlað þessum viðbjóðslegu ruslatunnum.....HNUSSSS.
En já, ég var víst að fara að skrifa um málstofuna..! Það mætti ekki allur hópurinn minn, sem var svolítill bömmer en þetta reddaðist, vona ég. Við vorum allar á inniskónum í flíspeysum og með nafnspjöld í barminum. Ég var í þykjustunni deildarstjóri og við vorum með foreldrafund. Svo skaut kennarinn alla hópana í kaf með frekar nasty spurningum. Að vísu slapp hópurinn minn ágætlega frá þessu þar sem við vorum að falla á tíma.

Eftir málstofu fórum við beinustu leið út í íþróttahús þar sem við fengum alveg fullt,fullt af 4 0g 5 ára börnum sem við fengum að æfa okkur á. Við vorum að kanna hreyfiþroskann þeirra með ýmsum þrautum á mörgum stöðvum. Það var mjög gaman og þetta voru ferlega falleg, góð og skemmtileg börn.

Eftir að börnin fóru, skóflaði ég í mig smá mat og fór svo aftur út í íþróttahús með nokkrum úr bekknum og spriklaði í rúman klukkutíma. Það var bara ferlega gaman og ég spretti smá til að rifja upp frjálsíþróttaæfingarnar í denn ;)

Eftir sturtu brunaði ég upp á leikskóla að sækja gullkálfinn, klukkutíma á undan áætlun. Ég þurfti nefnilega að "nota" hann aðeins í skólaverkefni. Hann og Avril ("kærastan" hans Ísaks..hehe) fengu að sprikla og gera alls konar kúnstir fyrir okkur Viky og Maríu því það er einmitt verkefni sem við erum að gera um þessar mundir. Það gekk bara vel þó það væri smá þreyta í mannskapnum og mikil óánægja þegar tímanum var lokið, þau vildu sko ekkert hætta að hoppa og hlaupa og leika sér!

Svo fórum við stubbur í Kringluna og keyptum nýja skó fyrir barnabæturnar og svo loksins komum við heim og hringdum í afa Gunna því hann á sko stórafmæli, þessi elska.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, ELSKU PABBI MINN!!!!
En já..ég er alveg dr***u þreytt..er að hugsa um að fara að lúlla..eða mála ferilmöppuna mína...hmm...
Knús, Eygló

2 Comments:

At February 04, 2006 11:24 AM, Anonymous Anonymous said...

skilaðu kveðju til pabba gamla til hamingju með daginn;) en skemmtilegt hjá þér í skólanum, gaman að fá að leika íþróttakennara smá.
kv heiðdís danska

 
At February 05, 2006 12:48 PM, Anonymous Anonymous said...

hae hae eygló mín.. vá greinilega gaman hjá tér eftir í skólanum!! hehe.. stud ad geta leikid sér í skólanum. .hehe.. en já annars er gott ad frétta.. er ALVEG ad koma heim.. fer hédan eftir 10 daga.. kem til íslands eftir 17.. jaeja.. segi tetta gott. heyrumst..
kvedja ´
Ina bjorg

 

Post a Comment

<< Home