Já ég er hér enn :)

Gleðilegt árið, góðir hálsar. Vonandi höfðu allir það gott um áramótin !
Um daginn fór ég á snatterí með Lísu systur, sem er svosem ekkert í frásögur færandi. Nema hvað að vegna einstakrar þarfar minnar fyrir kók og appelsínuklaka, fórum við í 10-11 á leiðinni heim. Í efstu steinsteyptu tröppunni segi ég þessa fallegu setningu : "hey á ég að segja þér svolítið nördalegt?". Ég var ekki fyrr búin að sleppa orðinu en ég steig á hálkublett og húrraði niður tröppurnar með góðgætið mitt í eftirdragi. Þegar ég var lent,hafði ég að sjálfsögðu miklar áhyggjur af mínu dýrmæta coka cola light semm hafði flogið með mér niður tröppurnar án þess að hafa haft neitt um það að segja. En fyrst að kókið slapp og appelsínuklakinn minn líka, gat ég farið að huga að eigin líkama. Marblettir hér og þar og ég er bara í heilu lagi.
En ég get alveg sagt ykkur það að ég er ekki á leiðinni í 10-11 í bráð!!!! Lísa hafði reyndar á orði að á eftir fleygu setningunni hefði átt að koma : "better yet, I´ll show you!!!". Enda var þetta nördalegt í meiralagi og hrikalega fyndið.
Við (lesist: mamma og pabbi) erum búin að kaupa parket á íbúðina!!! Og málningu líka. Svo nú ætla ég að kyssa eiturgrænu stofuveggina bless og sömuleiðis þetta miður fallega teppi. Þetta gæti meira að segja orðið til þess að ég get boðið fólki í heimsókn :). Það verður ráðist í þetta á næstu dögum :). Að vísu langar mig líka að senda eldhúsinnréttingarhurðarnar í sprautulökkun og mála yfir ísbláa eldhúsveggina. Aldrei að vita hvað manni dettur í hug, ef að skólinn drekkir mér ekki alveg.
Einkunnirnar eru allar í höfn og ég get verið sátt. Náði öllu og fékk bara fínar einkunnir :)
Í gær var Singstar partý með mínum elskulega bekk og það var bara rosalega gaman, ég vaknaði meira að segja smá hás (sem segir kannski mikið um sönghæfileika mína!). Við enduðum niðri í bæ, og ég í dúnúlpu og alles!! Ég ætlaði sko EKKI niður í bæ í þessu veðri. Svo allt í einu varð rjómablíða og vel bæjarfært. En iss piss, dúnúlpa á djamminu blívar..enda var ég sú eina sem skalf ekki og nötraði:)
Hálfgerð ritstífla í gangi núna, svo ég held ég slái botninn í þetta blogg að þessu sinni.


5 Comments:
hæ skvís, ég þakka kærlega fyrir jólakortið, rosa sæt mynd sem er sko stillt upp í hillunni í stofunni hér í dk. Þetta með dúnúlpuna, sko er ekki tískan að vera í lopapeysum á íslandi svo af hverju ekki dúnúlpu á djamminu;) vonandi fékkstu ekki marga marbletti við fallið, ef þú ert eitthvað skild mér þá eru þeir nokkrir, á alveg einstaklega létt með að fá marbletti. knús Heiðdís.dk
hæhæ og takk fyrir kvöldið elskan, þetta var rosa stuð hjá okkur:) vona að þú hafir ekki meitt þig mikið við fallið en þegar ég las þetta varð mér hugsað til annarrar manneskju sem ég þekki...hehe já ég sjálf... er alveg sú besta í að detta í hálku og fella aðra með mér í leiðinni:) sjáumst í skólanum á morgun:)
Sælar og gleðilegt árið:) Hlökkum til að kíkja við hjá ykkur í nýmálað og parketlagt :)
P.s. vissi sko allan tíman að þú myndir ná prófunum! Til lukku með það :)
Æji dúllan mín þú ert alveg guðdómlega klaufsk og það er eitt af því sem ég dýrka við þig (:
Æðislegt að fá parket og málningu á íbúðina! Þú brilllar á öllum prófum dúllan mín og hefur alltaf gert(nema kannski stærðfræði en það er önnur saga (; ) Til hamingju með þessar flottu einkannir.
knús og kram Gulla selfossmær
p.s Sóley eignaðist lítinn bolta í nótt 4180 gr og 52 cm
Eins gott að kókflaskan og klakinn sluppu. Marblettirnir gróa en kókflaskan... hehee
Til lukku með að það sé að verða gestavænt hjá ykkur, þá fer maður að kíkja yfir vegginn á ykkur ;)
Heyrumst krúsí ;)
Post a Comment
<< Home