Army of me

Tuesday, December 13, 2005

Hnuss! Hvað er þetta með ykkur? Ekki svo mikið sem einn hráki mér til heilla ? Hnusssss. Annars hafa prófin gengið alveg ágætlega, ég á eitt próf eftir og það er á morgun. Efni þessa yndislega áfanga er svo þurrt að ég er ekki einungis orðin þurr í munninum af lestrinum, heldur alla leið upp í heila!! Mér finnst ómögulegt að spá fyrir um gengið í prófinu á morgun en hef það á tilfinningunni að það verði engir flugeldar í kringum prófið mitt!! Ekki bætir það úr skák að sá stutti er með berkjubólgu og við vöktum í alla nótt..reyndar fékk ég að sofa í smá skorpum en þeir fegðar voru á stjái.
Svo er það bara út að borða með bekknum á morgun :)

Skrifa meira seinna
ciao,
Eygló

2 Comments:

At December 14, 2005 6:48 AM, Anonymous Anonymous said...

til hamingju með próflokin Eygló mín, ég sé föstudagskvöldið í hillingum, ekkert að hugsa meira um skólabækur fyrr en eftir áramót :)

 
At December 15, 2005 8:10 AM, Blogger Eygló said...

ohhh takkk :) þetta er frekar ljúft:)

 

Post a Comment

<< Home