Army of me

Saturday, November 19, 2005


Fjandans ritgerðin sem vakað hefur verið yfir ófáar stundir, er loksins komin í hendur kennarans. Ef einkunnin verður ekki mannsæmandi, þá verðum við svo súrar og sárar að það verður engu lagi líkt. Það kom allt uppá sem hefði getað komið uppá. Ritgerðin týndist í tölvunni og fannst svo aftur eftir ansi mikla leit. Eftir að hún var löguð til, var hún send í aðra tölvu og kom þar út eins og einhver hefði farið með hrærivél og tippexpenna í hana, sumar setningarnar tíu sinnum í henni og heilu kaflarnir þurrkuðust út. Þrátt fyrir aðstoð fólks með góða tölvukunnáttu, gekk ekki að finna seinni hluta ritgerðarinnar. Það versta er að þetta uppgötvaðist ekki fyrr en á miðnætti nóttina fyrir skiladag. Ég brunaði því í Breiðholtið og við sátum yfir ritgerðinni langt fram á nótt og mættum svo ósofnar í skólann morguninn eftir. Eftir kennslu var hafist handa við að reyna að fínpússa hana og það gekk heldur ekki snuðrulaust fyrir sig, tölvan bilaði og upphófst mikið usb-lykla ævintýri til að bjarga ritgerðinni úr klóm tölvunnar. Það tókst tíu mínútur í fimm og hlaupið var á harðaspretti með ritgerðina í kennarahólfið, allar þrjár orðnar of seinar að sækja börnin á leikskólann. Meira ævintýrið, enda er ég alveg komin með upp í kok.

Eftir að ég náði í Ísak minn á leikskólann, skutlaði ég honum austur á móti mömmu sem er núna að knúsa barnabarnið sitt ásamt afanum. Ég ætlaði að vera últra dugleg um helgina en er eki búin að vera það, alveg búin að vera upptekin af því að ná upp svefni og geðheilsu eftir ritgerðina! En núna er ég að reyna að klambra saman leiðarbókinni minni (eða símaskránni eins og Adda kallar hana) og á svo eftir alveg trilljón verkefni og lestur. Ég get þó vakað lengi lengi í kvöld, það er ekki eins og maður sé ekki kominn í æfingu í því!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home