Army of me

Tuesday, November 15, 2005

Leikskólaheimsóknirnar gengu bara nokkuð vel fyrir sig og þetta var bara skemmtilegt. Að vísu voru leikskólarnir báðir í Hafnarfirði og ég rata EKKRT í Hafnarfirði, ég myndi ekki rata þó líf mitt lægi við. Ég var með 3 farþega sem reyndu að leiðbeina mér í gegnum Hafnarfjörð með mis-haldgóðum leiðbeiningum svo úr varð hin mesta skemmtun, u-beygjur og hasar. Ég keyrði eins og hauslaus hæna fyrir vikið og beið eftir því að löggan myndi stoppa mig og biðja mig um að blása í blöðru fyrir sig!

Við erum búnar að sitja hér þrjár við ritgerðarsmíð í allan dag. Ég er alveg komin með upp í kok af þessari ritgerð og sem betur fer er hún alveg að verða tilbúin, bara heimildarskráin og lokaorð eftir...júbbííí

Á morgun er það svo ,,Það var lagið" beint eftir skóla:) ég kvíði því mest að sjá litla gullkálfinn ekkert allan daginn og svo verður hann sofnaður þegar ég kem heim :/bara þeim mun meira knús á fimmtudaginn í staðinn!

4 Comments:

At November 16, 2005 9:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Kítl kítl kítl
kv Helga

 
At November 16, 2005 2:58 PM, Blogger Eygló said...

heyyyy já ég verð víst að fara að svara þessu skollans kítli sem kemur úr öllum áttum!

 
At November 16, 2005 5:40 PM, Anonymous Anonymous said...

hehe tetta kítl er nú meiri vitleysan.. hehehe.. en já gott mál ad tér gengur vel... gangi tér bara áfram vel.. og ég veit hafnafjordurinn er voda flókinn.. finnst samt asuncion flóknari..hehehe

 
At November 17, 2005 2:49 AM, Anonymous Anonymous said...

Alveg kannast ég við að eiga erfitt með að rata í Hfj :S

 

Post a Comment

<< Home